
Djasshátíð Reykjavíkur
Frelsissveitin og Davíð Þór
Frelsissveitin (Iceland’s Liberation Orchestra) frumflutti nýtt verk eftir Hauk Gröndal á Djasshátíð Reykjavíkur í Norðurljósum Hörpu föstudaginn 28. ágúst kl 19.
Píanókonsert skrifaðan fyrir Davíð Þór Jónsson og Frelsissveitina.
Þátturinn hefst á viðtali Péturs Grétarssonar við Hauk Görndal og Davíð Þór Jónsson, um samstarfið og verkið, sem er ca. 50 mín. að lengd í 7 þáttum. Þar er teflt fram ótal litbrigðum, frjálsum spuna og skrifuðum köflum. Raddir sveitarinnar fá allar að njóta sín í telepatísku samspil nokkurra af færustu spunahljóðfæraleikurum Íslandsjazzins.
Flytjendur voru:
Davíð Þór Jónsson | píanó
Haukur Gröndal | saxófónn
Óskar Guðjónsson | saxófónn
Ólafur Jónsson | saxófónn
Snorri Sigurðarson | trompet
Sólveig Magnúsdóttir | flauta
Birgir Steinn Theódórsson | bassi
Matthías Hemstock | trommur
- Birt
- Aðgengilegt til
- Rennur ekki út
- Lengd
