Dagbók Jóns gamla

2. þáttur: „Óðar en varir auðnan snýst“

Í öðrum þætti höldum við áfram fylgjast með búskapnum í Miðdalsgröf og hvernig erfiðar nágrannadeilur hrekja Jón og fjölskyldu loks af jörðinni. Á þessum erfiðu stundum skrifar Jón um fátæktina, skort á mat og eldivið. Í dagbókinni finna einstakar lýsingar á farsóttum sem gengu yfir sveitina og lögðu fólk á besta aldri af velli - og þar voru ástvinir Jóns „gamla“ ekki undanskildir og gaf hann þar sorginni einstakt rými á síðum bókarinnar.

Dagskrárgerð: Dagrún Ósk Jónsdóttir, Eiríkur Valdimarsson og Jón Jónsson.

Tónlist: Framfari

Upplestur: Þorgeir Ólafsson

Framleiðsla og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir

Frumflutt

21. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Dagbók Jóns gamla

Dagbók Jóns gamla

Þrír þjóðfræðingar rýna í dagbók sem skrifuð var á Ströndum á árabilinu 1846-1879. Dagbókina hélt Jón „gamli“ Jónsson sem var fátækur leiguliði, bóndi og sjómaður. Þar er skrifað um hversdagslegt amstur hans og fjölskyldunnar og samlífi þeirra við náttúruna, harðindi og hungur.

Þættir

,