Okkar tími á safninu
Áfram verður fjallað um verk Auðar Sveinsdóttur og áhrif hennar í samhengi íslenskra textílverka, hannyrða og hönnunar. Rætt er við ættingja Auðar og annað samferðafólk sem kynntist…
Fjallað verður um verk Auðar Sveinsdóttur á Gljúfrasteini, skotthúfuna sem hún hlaut Álafossverðlaunin fyrir á áttunda áratugnum, Maríuklæðið og fleiri verk ásamt skrifum hennar um hannyrðir, textílverk, ull og fleira í tímaritinu Melkorku, Þjóðviljanum og Hug og hönd. Rætt verður við samferðafólk Auðar og aðra sem fylgdust með verkum hennar.

Þriggja þátta röð um Auði Sveinsdóttur, vináttu hennar og Nínu Tryggvadóttur listamanns, hannyrðir, textílverk og sýningu sem Gljúfrasteinn - hús skáldsins hefur í undirbúningi
Umsjónarmaður: Marta Guðrún Jóhannesdóttir safnafræðingur