5. þáttur: Hvar eru þau nú?
Hvar eru þau nú? Hvernig gengur að halda kúrs í ólgusjó ástarlífsins? Jónína heyrir í pörunum sem hafa heimsótt hana í fyrri þáttum Ástarvitans.
Parasambönd eru ekki alltaf tekin út með sældinni. Skin og skúrir skiptast á og róðurinn getur verið þungur. Þegar þannig er í pottinn búið er mikilvægt að fá góða leiðsögn. Þerapistinn Jónína Guðmann fær til sín góað gesti í hlaðvarpinu Ástarvitanum sem þurfa á aðstoð að halda í ólgusjó ástarlífsins.