Erna og ástirnar tvær - seinni hluti
Óvænt bónorð leiðir litlu stúlkuna frá Ísafirði í ævintýri sem hún hefði aldrei getað ímyndað sér.
Við eyðum mörg hver mikilli orku í að koma í veg fyrir barneignir á fyrri hluta fullorðinsáranna. Þegar upp er staðið þarf oft enn meiri orku í að láta af þeim verða.
Þessi saga er upprunalega úr þáttunum Grár köttur á Rás 1.

Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen