Æ sér gjöf til gjalda

Annar þáttur

Eru gjafir tungumál ástarinnar og er þá hægt kaupa ástina? Gefur maður sumum betri gjafir en öðrum og hvað er þá viðeigandi gefa? Hugsa konur meira um gjafir en karlar? Fær einhleypt fólk færri pakka en það gefur og skipta gjafir til maka meira máli en allar hinar? Hver kaupir gjafirnar og er það vinna? Getur pakkasúpa verið betri gjöf en demantseyrnalokkar? Reynt verður svara þessum og fleiri spurningum í öðrum þætti.

Viðmælendur: Sólrún Ósk Lárusdóttir, sálfræðingur, Hulda Tölgyes, sálfræðingur, Eva Katrín Baldursdóttir, verslunareigandi, Ragnar Hrólfsson, blaðamaður, Ingilín Kristmannsdóttir, mamma og Ívar Þrastarson, pabbi.

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Framleiðsla: Jóhannes Ólafsson.

Frumflutt

22. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Æ sér gjöf til gjalda

Æ sér gjöf til gjalda

Allir elska gjafir, skiljanlega, það er gaman gjöf og gaman gefa gjöf, en öllu gamni fylgir alvara. Gjöfin virðist við fyrstu sýn vera látlaust fyrirbrigði, eitthvað sætt sem við gefum einhverjum með það eitt í huga gleðja, en undir yfirborði fallegs jólapakka leynist margt ósagt, óskrifaðar reglur, pólitík og langur listi yfir gjafaferil milli einstaklinga, fjölskyldna og hópa. Gjöfinni fylgir nefnilega skuldbinding, æ sér gjöf til gjalda.

Gjafamenning er til staðar í öllum samfélögum heims og er í raun alltumlykjandi í samskiptum fólks, hvort sem það gerir sér grein fyrir því eða ekki. Við lifum, hrærumst og fylgjum reglum um gefa, þiggja og endurgjalda, líkt og við gerðum eflaust fyrir 30 þúsund árum.

Eitthvað virðist þó hafa færst til á þessum tíma og gjafainnkaupum fylgir ekki bara skuldbinding heldur líka stress, valkvíði, fjárhagsáhyggjur, spenna innan fjölskyldunnar og drama í ástarsamböndum. En hvers vegna gefum við þá gjafir, er einhver tilgangur með þessu eða getum við allt eins sleppt þessu?

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Framleiðsla: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,