Það er martröð í skáldskap og tónum sem verður efni þessa þáttar. Til forna trúði fólk því að til væri óvættur, mara, sem legðist ofan á sofandi fólk eða traðkaði á því og af því er orðið „martröð“ dregið. Í Ynglinga sögu Snorra Sturlusonar segir frá því þegar mara treður mann til bana. Skáldkonan Natasha S. vísar til goðsagnarinnar um Möru í ljóðabók sinni „Mara kemur í heimsókn“ og í þættinum verða lesin þrjú ljóð úr henni. Einnig verður lesið ljóð „Martröð“ eftir Örn Arnarson og flutt tónverk Hildigunnar Rúnarsdóttur við ljóðið. Af öðrum tónskáldum sem hafa lýst martröð í tónum má nefna Gioacchino Rossini, Hanns Eisler og Antonio Francisco Braga. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Melkorka Ólafsdóttir.