12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 20. september 2026

Útvarpsfréttir.

Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt mannskæðar árásir á báða bóga. Úkraínumenn réðust á olíuinnviði í Moskvu og borgarstjórinn sakar þá um tilraunir til að trufla þingkosningar sem standa yfir.

Dómsmálaráðherra segir kosningalögin ekki besta verkfæri Alþingis og stjórnvalda til að verja byggð í landinu. Misvægi atkvæða eftir kjördæmum sé það mesta hér í Vestur-Evrópu. Ráðherra leggur til að þingmannanefnd vinni upp úr nýjum tillögum um breytingar á kosningalögum.

Forsætisráðherra Danmerkur ætlar ekki að ljóstra upp um allt innihald samnings Danmerkur og Grænlands við Bandaríkin að svo stöddu. Hún er á leið til Bandaríkjanna þar sem hún og Bandaríkjaforseti undirrita samninginn.

Ríkisskattstjóri kannaði ekki nógu vel fjárhagsleg áhrif þess að segja þremur aðalvarðstjórum upp. Þetta segir umboðsmaður Alþingis. Uppsagnir eldra fólks fyrir annað á lægri launum geti falið í sér óbeina mismunun á grundvelli aldurs.

Enska poppstjarnan Ed Sheeran baðst afsökunar á tónleikum í Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöld. Hann hefur legið undir ámæli fyrir að standa ekki með upphitunaratriði sínu vegna yfirlýsinga þess um stuðning við Palestínu.

Plast, netadræsur, baujur og ýmsir skemmtilegir munir verða týndir upp úr Landeyjafjöru í dag í tilefni af alþjóðlega hreinsunardeginum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,