07:03
Morgunútvarpið
Rúrik, JK Rowling, Artemis, ástandið í Líbanon og velsæld þjóðar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Sjónvarpsþættir um Harry Potter, sem byggðir verða á fyrstu bókinni um strákinn sem lifði, Harry Potter og viskusteinninn eru væntanlegir um jólin um jólin. Fjöldi aðdáenda Harry Potter ætlar þó ekki að horfa á þættina vegna þess að skoðanir höfundarins J.K Rowling á trans fólki misbýður þeim. Heimskviður fjalla um málið í nýjasta þætti sínum og þar var meðal annars rætt við Íslenskan aðdáanda sem ætlar að þekja öll Potter-flúrin sín í mótmælaskyni. Oddur Þórðarson fjallaði um málið í Heimskviðum og hann kom til okkar.

Geimfararnir í Artemis-leiðangrinum eru lentir eftir að hafa ferðast lengra út í geim en nokkur maður hefur áður gert. Sævar Helgi Bragason mætti í Morgunútvarpið í dag og fræddi okkur betur um þessa frægðarför.

Ísraelar hafa drepið eða sært 600 börn í Líbanon síðan 2. mars og hafa haldið árásum sínum áfram þrátt fyrir að samið hafi verið um tímabundið vopnahlé í Mið-Austurlöndum í síðustu viku. Sandra Bjarnadóttir er nýkomin til landsins frá Líbanon þar sem hún starfaði með Læknum án landamæra. Hún mætti í Morgunútvarpið og fræddi okkur um ástandið þar ásamt Láru Jónasdóttur, kollega sínum hjá Læknum án landamæra.

Rúrik Gíslason fer með hlutverk í Þýsku gamanmyndinni Eat Pray Bark, sem farið hefur með himinskautum á Netflix og er á toppnum í Þýskalandi. Ekki nóg með það, hann er líka velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna og í kvöld sýnir RÚV mynd um ferð hans til Rúanda þar sem hann kynnti sér hvernig fjölskylduefling samtakanna aðstoðar barnafjölskyldur við að komast úr sárafátækt og standa á eigin fótum. Rúrik var á línunni.

Velsældarþingið fer fram í Hörpu dagana 16. og 17. apríl 2026 en þar koma saman alþjóðlegir leiðtogar og sérfræðingar til að ræða hvernig endurskilgreina megi efnahagslegan árangur út frá velsæld fólks og náttúrunnar fremur en eingöngu vergri landsframleiðslu. Ekki vanþörf á segja sumir og við fengum til okkar Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra hjá landlæknisembættinu, sálfræðingi og doktor í lýðheilsuvísindum til að fræða okkur nánar um Velsældarþingið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,