Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Kallað er eftir samhentum aðgerðum í efnahagsmálum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Slíkir samningar voru gerðir 1990 og hafa síðan kallast þjóðarsáttasamningarnir. Bolli Héðinsson hagfræðingur var efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar þá var við völd. Hann rifjaði þjóðarsáttina upp og efnahagsástandið sem þá var.
Björn Malmquist fréttamaður fylgdist með þingkosningunum í Ungverjalandi um helgina. Hann sagði frá niðurstöðunum í spjalli frá Búdapest og ræddi við Árna Snævarr blaðamann og rithöfund og Viktoriu Munk stjórnmálaskýranda.
Í dag eru 120 ár síðan írska skáldið Samuel Beckett fæddist. Illugi Jökulsson útvarpsmaður og afmælisbróðir Becketts byrjaði ungur að lesa verk skáldsins, Illugi kom og sagði frá.
Tónlist:
Erla - Álftagerðisbræður,
Gettur hver hún er - Ellen Kristjánsdóttir,
Walk on by - Dionne Warwick.

07:30

08:30
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Þegar Unnar Geir var yngir faldi hann óörggið með hroka og þurfti að læra mikilvæga lexíu. Hann er þakklátur fyrir líf sitt hér á Íslandi eftir að hafa kynnst hversu brothætt mannréttindi geta verið annars staðar í heiminum.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð íslenskra skálda hljóma í þessum þætti. Fyrst eru tvö lög eftir Torfa Ólafsson, annarsvegar Systkinin sem Torfi samdi við ljóð Einars H. Kvaran og Pálmi Gunnarsson syngur og hinsvegar Frostrósir við ljóð eftir Örn Arnarson sem Berglind Björk Jónasdóttir syngur. Leifur Gunnarsson samdi lag við ljóðið Náttúruraddir eftir Örn Arnarson sem Ingrid Ösp Kjartansdóttir syngur. Hlynur Þorsteinsson syngur eigið lag við ljóðið Suðrænar rósir eftir Jónas Guðlaugsson, Hildur Vala Einarsdóttir syngur lag Sigurðar Bjólu við ljóðið Mannkynssaga fyrir byrjendur eftir Stein Steinarr og Ellen Kristjánsdóttir syngur Lífið, ljóð og ég eftir Stein Steinarr, en Jón Ólafsson samdi lagið. Þórunn Lárusdóttir syngur Afmælisdiktur Þórbergs Þórðarsonar, lagið er eftir Atla Heimi Sveinsson og Björgvin Halldórsson syngur um Selju litlu, lag sem Jón frá Hvanná samdi við ljóð Guðmundar Inga Kristjánssonar. Söngkvartettinn Út í vorið syngur Litla skáld á grænni grein, ljóð Þorsteins Erlingssonar en lagið er eftir Gunnar Sigurgeirsson. Karlakórinn Heimir ásamt einsöngvaranum Pétri Péturssyni flytja lokalagið Ef ætti ég hörpu eftir Pétur Sigurðsson en ljóðið er eftir Friðrik Hansen. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir að allt sé hægt ef maður kann að fara nógu hægt.
Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar í dag með gullmola úr safni útvarpsins. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra upptöku frá árinu 1947 úr tónlistarþætti í umsjón Jóns Þórarinssonar, þar sem hlustendum er kennd listin að hlusta á útvarp, þar er talað um góðar og slæmar hlustunarvenjur í ýmislegt fleira til að bæta hlustunarupplifun. Mjög áhugaverður bútur sem við heyrðum og Helga Lára sagði okkur betur frá í þættinum.
Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Júlíus Ó. Einarsson, en hann var að senda frá sér nýja bók sem heitir Í framlínu - lögreglumenn segja frá. Hann tók viðtöl við tugi lögreglumanna, sem segja frá reynslu sinni, upplifun af starfinu í bókinni. Við fengum hann til að segja okkur frá þessari bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og þeim höfundum og bókum sem hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Júlíus talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Hollendingurinn fljúgandi e. Frederick Marryat
Konungs skuggsjá, höf. ókunnur
A short History of the World according to Sheep e. Sally Coulthard
Prisoners of Geography e. Tim Marshall
The Story of Russia e. Orlando Figes
Enid Blyton
Tónlist í þættinum í dag:
Vertu ekki að kvarta / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Kormákur Bragason)
Ég skal syngja fyrir þig / Björgvin Halldórsson (G. Sklerov & Phyllis Molinary, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Words / Bee Gees (Maurice, Robin og Barry Gibb)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Leiðtogar fjölmargra Evrópuríkja hafa fagnað sigri Tisza flokksins í þingkosningunum í Ungverjalandi í gærkvöld. Leiðtogi Tísa ætlar að hreinsa til í stjórnkerfi landsins og boðar bætt samskipti við Evrópusambandið.
Bandaríkjaforseti hótar að loka fyrir alla umferð skipa til og frá Íran um Hormússund. Lokunin á að taka gildi eftir rúman einn og hálfan klukkutíma.
Skoskt fyrirtæki krefst ríflega hundrað milljarða króna frá Samherja fyrir breskum dómstólum vegna viðskipta útgerðafélagsins í Namibíu.
Fangaverðir segja ástandið í yfirfullum fangelsum óviðunandi og fangelsismálastjóri tekur undir með þeim.
Forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað leiðtoga Venstre og Íhaldsflokksins á sinn fund. Stjórnarmyndunarviðræður við vinstriflokkana hafa gengið hægt.
Páfi hefur ekki áhuga á að rökræða við Bandaríkjaforseta sem hefur gagnrýnt hann harðlega. Páfi ætlar að halda áfram að flytja boðskap friðar.
Ungir höfuðborgarbúar kjósa síst aðra ferðamáta en einkabílinn. Langur ferðatími er algengasta ástæða þess að fólk velur einkabílinn.
Norður-írinn Rory McIlroy varði titil sinn á Masters-mótinu í golfi í gærkvöld. Aðeins þrír aðrir kylfingar hafa afrekað það í 92 ára sögu mótsins.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Skoska fyrirtækið Restitution Litigation Limited vinnur að því fyrir hönd namibíska ríkisins að reyna að endurheimta peninga í Namibíumálinu frá Samherja. Fyrirtækið hefur höfðað mál gegn Samherja fyrir breskum dómstólum og vill allt 120 milljarða króna í skaðabætur.
Forstjóri Restitution, Katherine Mulhern, segir að stefnan byggi á því að Samherji hafi með meintum spilltum og meintum ólögmætum hætti haft fé af namibíska ríkinu og namibísku þjóðinni þegar fyrirtækið stundaði fiskveiðar þar á ár árunum 2012 til 2019. Katherine segir að málatilbúnaðurinn byggi á því að Samherji eigi að skila til baka þeim peningum sem útgerðarfélagið hafði af namibísku þjóðinni.
Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, segir að stefnan í málinu sé tilhæfulaus og að útgerðarfélagið hafi tekið til varna fyrir dómi og muni flytja málið þar.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Árið 1896 komu til landsins fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs. „Þetta eru neyðarsveitir, svipað og ýmsar Rauða kross eða hjálparsveitir sem eru sendar til þróunarlanda í dag,“ eins og Ólafur H. Torfason orðaði það. Hann skráði á sínum tíma hundrað ára sögu systranna á Íslandi.
Í þættinum heyrum við úr dagbókum Systur Clementiu eldri sem var í hópi þeirra fyrstu sem komu til landsins. St. Jósefssystur eru þekktar fyrir ýmis brautryðjendastörf í Reykjavík. Þær reistu m.a. fyrsta sjúkrahúsið með nútímasniði, gerðu fyrsta holræsið í borginni og veittu sjúklingum sínum hreint vatn úr brunni sem þær létu grafa. Í þættinum skoðum við tíma Jósefssystra hér á landi út frá áðurnefndri dagbók og viðtalsbrotum úr safni RÚV. Við sögu koma jarðskjálftar, bagalegar aðstæður Íslendinga fyrir og um aldamótin 1900, hnignun kaþólskra nunna á heimsvísu undanfarna hálfa öld og kynferðislegt ofbeldi presta á nunnum. Á síðustu tveimur áratugum hafa nunnur víðast hvar í heiminum stigið fram og greint frá kynferðislegu ofbeldi og misnotkun kaþólskra presta. Frásagnir þeirra varpa ljósi á vandamál sem enn er lítið rætt opinberlega.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Netherlands Radio Chamber Orchestra, Kashkashian, Kim - Movement for viola and orchestra.
Choi, Ye-Eun, Mutter, Anne-Sophie, Razavi, Muriel, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : I. Maestoso - Largo subito.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : II. Poco più tranquillo.
Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo, Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : III. Poco accelerando.
Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel, Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : IV. Poco più mosso (ma calmo!).
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : V. Pesante subito - Presto vivace.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : VI. Più pesante.
Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel, Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : VII. L'istesso tempo.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : VIII. Più mosso (molto ritmico).
Choi, Ye-Eun, Mutter, Anne-Sophie, Razavi, Muriel, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : IX. Molto vivace.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : X. Scherzando vivace (spielerisch,.
Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo, Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : XI. Feroce, agitato subito.
Stærk, Ulrich, Hallveig Rúnarsdóttir - Wesendonck Lieder: II. Stehe Still.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn að þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess að Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um að ungir drengir séu sá þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bókum verður skyggnst inn í stöðu læsis á Íslandi og rætt við unga heimsbókmenntamanninn Gabríel sem hefur fyrir 12 ára aldur lesið verk eftir Victor Hugo, George Orwell, John Steinbeck og Mary Shelly.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í Hafnarborg sýnir um þessar mundir pólska listamanna tvíeykið Austur-Íslendingar, en það skipa þau Weronika Balcerak og Lukas Bury. Titill sýningarinnar, Heiðvirðir einstaklingar, er sóttur í auglýsingu sem birtist í smáauglýsingablaði Tímans árið 1991, en sýningin hverfist um samskipti á milli Póllands og Íslands. Samskipti, sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Við ræðum við Lukas og Weroniku í þætti dagsins.
Karólína Rós Ólafsdóttir segir frá listamannadvöl í Lunga lýðháskólanum á Seyðisfirði og Haukur Þorgeirsson fer með okkur inn í heim norrænna ljóða á 12.öld.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hvers vegna er svona óþægilegt að fara að spjalla, ódrukkinn, við sæta ókunnuga manneskju á almannafæri? Er það útaf því að við eigum að vera á Tinder eða er það útaf því að það er samfélagslega ekki viðurkennd hegðun á norðurlöndum. Við ræðum við einhleypan, gagnkynhneigðan mann í Berlín, Gunnar Örn Stephensen.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Mikill fögnuður braust út víða í Ungverjalandi þegar ljóst var að ríkisstjórn Viktors Orbans hefði tapað fyrir Tisza-flokki Peters Magyars. Spegillinn ræddi við Maríönnu Csillaq í Búdapest.
Ríkisstjórnin ætlar að styðja sveitarfélagið Múlaþing við að leysa þann vanda sem skapast hefur í atvinnumálum Seyðfirðinga. Hátt í 100 störf hurfu frá Seyðisfirði þegar Síldarvinnslan hætti þar allri útgerð og fiskvinnslu.
Nýjasta útgáfa gervigreindarmódelsins Claude er svo fær, að fyrirtækið sem gerði módelið vill ekki birta það almenningi. Það gæti hakkað sig inn í viðkvæmustu tölvukerfi heims og hefur fundið þúsundir hættulegra galla í hugbúnaði.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Pikknikk - Nóttin tekur við.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Veislan á Sólhaugum (1943) : 2. Brúðkaupsmars.
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Veislan á Sólhaugum (1943) : 3. Halling.
Magnús Jónsson, Skúli Halldórsson - Að vestan.
Aoba, Ichiko - Tower.
Tengholm, Johan, Anna Gréta Sigurðardóttir, Sigurður Flosason - Jag vet en dejlig rosa (with Sigurður Flosason and Johan Tengholm).

frá Veðurstofu Íslands
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjólinu að þessu sinni eru flautur og tvíblöðungar í aðalhlutverki.
Tónlist sem hljómar í þættinum:
Inngangur og tilbrigði við Trockne Blumen eftir Franz Schubert, Op. 160, D802
Flytjendur: Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta og Michael McHale, píanó
Solitude eftir Magnús Blöndal Jóhannsson
Stefán Ragnar Höskuldsson, flauta
Fuglatónar, Kvennatónar og Tónatónar eftir Atla Heimi Sveinsson
Manuela Wiesler, flauta
Flautukonsert nr. 1 eftir Atla Heimi Sveinsson
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Íslands, einleikari: Robert Aitken, flautur
Little Flower Garden með Djivan Gasparyan á duduk
Sarewa og Overtones með The World Wind Band, skipað þeim Dirk Campbell og Jan Hendrickse
Insecurities með Shabaka
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Árið 1896 komu til landsins fjórar nunnur úr reglu St. Jósefs. „Þetta eru neyðarsveitir, svipað og ýmsar Rauða kross eða hjálparsveitir sem eru sendar til þróunarlanda í dag,“ eins og Ólafur H. Torfason orðaði það. Hann skráði á sínum tíma hundrað ára sögu systranna á Íslandi.
Í þættinum heyrum við úr dagbókum Systur Clementiu eldri sem var í hópi þeirra fyrstu sem komu til landsins. St. Jósefssystur eru þekktar fyrir ýmis brautryðjendastörf í Reykjavík. Þær reistu m.a. fyrsta sjúkrahúsið með nútímasniði, gerðu fyrsta holræsið í borginni og veittu sjúklingum sínum hreint vatn úr brunni sem þær létu grafa. Í þættinum skoðum við tíma Jósefssystra hér á landi út frá áðurnefndri dagbók og viðtalsbrotum úr safni RÚV. Við sögu koma jarðskjálftar, bagalegar aðstæður Íslendinga fyrir og um aldamótin 1900, hnignun kaþólskra nunna á heimsvísu undanfarna hálfa öld og kynferðislegt ofbeldi presta á nunnum. Á síðustu tveimur áratugum hafa nunnur víðast hvar í heiminum stigið fram og greint frá kynferðislegu ofbeldi og misnotkun kaþólskra presta. Frásagnir þeirra varpa ljósi á vandamál sem enn er lítið rætt opinberlega.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir að allt sé hægt ef maður kann að fara nógu hægt.
Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar í dag með gullmola úr safni útvarpsins. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra upptöku frá árinu 1947 úr tónlistarþætti í umsjón Jóns Þórarinssonar, þar sem hlustendum er kennd listin að hlusta á útvarp, þar er talað um góðar og slæmar hlustunarvenjur í ýmislegt fleira til að bæta hlustunarupplifun. Mjög áhugaverður bútur sem við heyrðum og Helga Lára sagði okkur betur frá í þættinum.
Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Júlíus Ó. Einarsson, en hann var að senda frá sér nýja bók sem heitir Í framlínu - lögreglumenn segja frá. Hann tók viðtöl við tugi lögreglumanna, sem segja frá reynslu sinni, upplifun af starfinu í bókinni. Við fengum hann til að segja okkur frá þessari bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og þeim höfundum og bókum sem hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Júlíus talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Hollendingurinn fljúgandi e. Frederick Marryat
Konungs skuggsjá, höf. ókunnur
A short History of the World according to Sheep e. Sally Coulthard
Prisoners of Geography e. Tim Marshall
The Story of Russia e. Orlando Figes
Enid Blyton
Tónlist í þættinum í dag:
Vertu ekki að kvarta / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Kormákur Bragason)
Ég skal syngja fyrir þig / Björgvin Halldórsson (G. Sklerov & Phyllis Molinary, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Words / Bee Gees (Maurice, Robin og Barry Gibb)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hvers vegna er svona óþægilegt að fara að spjalla, ódrukkinn, við sæta ókunnuga manneskju á almannafæri? Er það útaf því að við eigum að vera á Tinder eða er það útaf því að það er samfélagslega ekki viðurkennd hegðun á norðurlöndum. Við ræðum við einhleypan, gagnkynhneigðan mann í Berlín, Gunnar Örn Stephensen.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Sjónvarpsþættir um Harry Potter, sem byggðir verða á fyrstu bókinni um strákinn sem lifði, Harry Potter og viskusteinninn eru væntanlegir um jólin um jólin. Fjöldi aðdáenda Harry Potter ætlar þó ekki að horfa á þættina vegna þess að skoðanir höfundarins J.K Rowling á trans fólki misbýður þeim. Heimskviður fjalla um málið í nýjasta þætti sínum og þar var meðal annars rætt við Íslenskan aðdáanda sem ætlar að þekja öll Potter-flúrin sín í mótmælaskyni. Oddur Þórðarson fjallaði um málið í Heimskviðum og hann kom til okkar.
Geimfararnir í Artemis-leiðangrinum eru lentir eftir að hafa ferðast lengra út í geim en nokkur maður hefur áður gert. Sævar Helgi Bragason mætti í Morgunútvarpið í dag og fræddi okkur betur um þessa frægðarför.
Ísraelar hafa drepið eða sært 600 börn í Líbanon síðan 2. mars og hafa haldið árásum sínum áfram þrátt fyrir að samið hafi verið um tímabundið vopnahlé í Mið-Austurlöndum í síðustu viku. Sandra Bjarnadóttir er nýkomin til landsins frá Líbanon þar sem hún starfaði með Læknum án landamæra. Hún mætti í Morgunútvarpið og fræddi okkur um ástandið þar ásamt Láru Jónasdóttur, kollega sínum hjá Læknum án landamæra.
Rúrik Gíslason fer með hlutverk í Þýsku gamanmyndinni Eat Pray Bark, sem farið hefur með himinskautum á Netflix og er á toppnum í Þýskalandi. Ekki nóg með það, hann er líka velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna og í kvöld sýnir RÚV mynd um ferð hans til Rúanda þar sem hann kynnti sér hvernig fjölskylduefling samtakanna aðstoðar barnafjölskyldur við að komast úr sárafátækt og standa á eigin fótum. Rúrik var á línunni.
Velsældarþingið fer fram í Hörpu dagana 16. og 17. apríl 2026 en þar koma saman alþjóðlegir leiðtogar og sérfræðingar til að ræða hvernig endurskilgreina megi efnahagslegan árangur út frá velsæld fólks og náttúrunnar fremur en eingöngu vergri landsframleiðslu. Ekki vanþörf á segja sumir og við fengum til okkar Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, sviðsstjóra hjá landlæknisembættinu, sálfræðingi og doktor í lýðheilsuvísindum til að fræða okkur nánar um Velsældarþingið.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Presturinn Al Green varð 80 ára, Stones tungan á afmæli, leikurinn Hvert er lagið? Og Massive Attack maðurinn 3D handtekinn!
Lagalisti þáttarins:
DAÐI FREYR PÉTURSSON – Hot damn
BAND OF HORSES – Is There A Ghost?
AL GREEN – Tired of being alone
ALANIS MORISSETTE – You Learn
SEABEAR – Arms
RADIOHEAD – All I Need
THE POLICE – Every Breath You Take
ADELE – Set Fire to the Rain
THE CHARLATANS – A man needs to be told
BRYAN ADAMS – Heaven
AMABADAMA – AI AI AI
ROLLING STONES – Brown Sugar
KUSK & ÓVITI – Elsku vinur
BLUR – Coffee - Tv
MEMFISMAFÍAN - Ég skal syngja fyrir þig
WHITE STRIPES – One more cup of coffee
NÝDÖNSK – Fyrsta skiptið
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
PRINS PÓLÓ – Er of seint að fá sér kaffi núna
TV GIRL – Cigarettes out the Window
DURAN DURAN – Save a Prayer [US Single Version]
FRIÐRIK DÓR JÓNSSON – Þessi kjóll
GREEN DAY – Time of Your Life (Good Riddance)
EMPIRE OF THE SUN – We Are The People
SABRINA CARPENTER – Espresso
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Against the Current
CREATURE OF HABIT – Myrká
CALVIN HARRIS – One Kiss
ÍVAR KLAUSEN – All Will Come To Pass
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR & HREIMIR – Svona var lífið
BELLE & SEBASTIAN – I Want The World To Stop
CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL – Down On The Corner
HARRY STYLES – American Girls
LCD SOUNDSYSTEM – North American Scum
LYKKE LI – Lucky Again
NOAH KAHAN – The Great Divide
BUBBI MORTHENS – Að Eilífu Ung
ROBERT PALMER – Addicted To Love
ROD STEWART – Baby Jane

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Leiðtogar fjölmargra Evrópuríkja hafa fagnað sigri Tisza flokksins í þingkosningunum í Ungverjalandi í gærkvöld. Leiðtogi Tísa ætlar að hreinsa til í stjórnkerfi landsins og boðar bætt samskipti við Evrópusambandið.
Bandaríkjaforseti hótar að loka fyrir alla umferð skipa til og frá Íran um Hormússund. Lokunin á að taka gildi eftir rúman einn og hálfan klukkutíma.
Skoskt fyrirtæki krefst ríflega hundrað milljarða króna frá Samherja fyrir breskum dómstólum vegna viðskipta útgerðafélagsins í Namibíu.
Fangaverðir segja ástandið í yfirfullum fangelsum óviðunandi og fangelsismálastjóri tekur undir með þeim.
Forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað leiðtoga Venstre og Íhaldsflokksins á sinn fund. Stjórnarmyndunarviðræður við vinstriflokkana hafa gengið hægt.
Páfi hefur ekki áhuga á að rökræða við Bandaríkjaforseta sem hefur gagnrýnt hann harðlega. Páfi ætlar að halda áfram að flytja boðskap friðar.
Ungir höfuðborgarbúar kjósa síst aðra ferðamáta en einkabílinn. Langur ferðatími er algengasta ástæða þess að fólk velur einkabílinn.
Norður-írinn Rory McIlroy varði titil sinn á Masters-mótinu í golfi í gærkvöld. Aðeins þrír aðrir kylfingar hafa afrekað það í 92 ára sögu mótsins.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa stýrði Popplandi að þessu sinni. Plata vikunnar kynnt til leiks: Ívar Klausen með Ívari Klausen, dagskrá Bræðslunnar kynnt, nýtt frá Unu Torfa og Ágústi, Bruno Mars, Þormóði, Moses Hightower og fleirum og Björgvins Halldórsonar minnst,
Flott - Tuttugu og eitthvað.
Þormóður Eiríksson, Alaska1867, Maron Birnir Reynisson - Stoppa tímann.
The Knife - Heartbeats.
Kyrr - Erjur.
MANIC STREET PREACHERS - A Design for Life.
Fontaines D.C. - Favourite.
THE CORAL - In The Morning.
ALL SAINTS - Never Ever.
Ouse - What you made me (feat. Ouse).
Day, Howie - Collide (LP version).
Svansa - What you made me (feat. Ouse).
The Script - The Man Who Can't Be Moved.
Larsson, Zara, PinkPantheress - Stateside + Zara Larsson.
Tame Impala - Dracula.
Ivar Klausen - Slip away.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Ivar Klausen - See it through.
THE CRANBERRIES - Linger.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
Helgi Björnsson - Allt ljómar.
Björgvin Halldórsson - Komdu.
Swift, Taylor - Elizabeth Taylor.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
LAND OG SYNIR - Terlín.
Sólstrandargæjarnir - Sólstrandargæi.
FM Belfast - Útihátíð.
TODMOBILE - Lestin.
Bubbi Morthens, Kristmundur Axel - Kominn heim.
Einakróna - Hringiða.
Simon and Garfunkel - 59th street bridge song (feelin' groovy).
Of Monsters and Men - Ordinary Creature.
Fleetwood Mac - Silver springs.
FIRST AID KIT - The Lion's Roar.
Sycamore tree - Better call off the search for my soul.
PATTI SMITH - Because the Night.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
ABC - The Look of Love [Part 1].
hOFFMAN - Fallbeygðu mig.
Kings of Leon - To Space.
ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - Don't bring me down.
Laufey - Madwoman.
VANCE JOY - Riptide.
ÍVAR KLAUSEN - Damage Done.
OLIVIA DEAN - So Easy (To Fall in Love)
THE SHOCKING BLUE - Venus.
MEMFISMAFÍAN - Syngdu.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Ritlistarbúðirnar Iceland Writers Retreat eru haldnar hér á Íslandi í vikunni. Víðfrægir höfundar frá mörgum löndum leiðbeina þar þátttakendum á málstofum um ritlist og bókaskrif. Sú sem veit allt um þetta er fyrrum forsetafrú Eliza Reid og hún kom til okkar.
Við ætlum að beina sjónum okkar að nágrannaþjóðum okkar í Skandinavíu þar sem ítrekað berast nú fréttir af börnum og unglingum sem fremja alvarleg ofbeldisbrot gegn greiðslu. Þessu fyrirkomulagi hefur verið lýst sem nokkurs konar afbrotaþjónustu ungmenna. Upphaflega var þessi tegund afbrota aðallega bundin við Svíþjóð en síðustu ár hefur hún orðið meira og meira áberandi í Noregi og Danmörku. Við ræddum við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing um þessa þróun og hvort við Íslendingar þurfum að hafa áhyggjur.
Við ræddum um Netöryggismál en gervigreindin virðist vera að gera hökkurum lífið auðveldara - Ýmir Vigfússon tæknistjóri og einn stofnenda Keystrike og hann ræddi við okkur um þessi mál.
Vegagerðin boðar til ráðstefnu í vikunni undir yfirskriftinni Horfum fram á veginn, þar sem fjallað verður meðal annars um hvernig hægt er að klára stórar framkvæmdir á réttum tíma og innan fjárhagsramma, og hvernig staðið er að viðhaldi og uppbyggingu innviða. Nú stendur Vegagerðin frammi fyrir miklum áskorunum í vegagerð, ekki síst þar sem nokkur jarðgöng eru í pípunum. Bergþóra Þorkelsdóttir er forstjóri Vegagerðarinnar og við ræddum um við hana um þessar áskoranir og hvað verður helst í brennidepli á ráðstefnunni.
Í gær var kosið í Ungverjalandi og guldu sitjandi öfl þar afhroð og misstu meirihlutann á þingi. Tisza-flokkurinn vann stórsigur á flokki Viktors Orban, forsætisráðherra, sem hefur verið við völd í 16 ár og hlaut tvo þriðju hluta þingsæta. En hvaða þýðingu hefur þetta fyrir Evrópu sem heild? Snærós Sindradóttir, sem er framkvæmdarstjóri Evrópuhreyfingarinnar, bjó í Ungverjalandi um tíma og fylgdist vel með kosningunum. Hún kíkti til okkar.
Hvert stefnir Ísland ? Alþjóðasamvinna á krossgötum er yfirskrift ráðstefnu sem Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands ásamt fleiri stofnunum stendur fyrir á morgun. Rástefnan er öllum opin og við ætlum að heyra meira af því sem þar verður rætt - við heyrðum í Piu Hansson forstöðumanni Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Mikill fögnuður braust út víða í Ungverjalandi þegar ljóst var að ríkisstjórn Viktors Orbans hefði tapað fyrir Tisza-flokki Peters Magyars. Spegillinn ræddi við Maríönnu Csillaq í Búdapest.
Ríkisstjórnin ætlar að styðja sveitarfélagið Múlaþing við að leysa þann vanda sem skapast hefur í atvinnumálum Seyðfirðinga. Hátt í 100 störf hurfu frá Seyðisfirði þegar Síldarvinnslan hætti þar allri útgerð og fiskvinnslu.
Nýjasta útgáfa gervigreindarmódelsins Claude er svo fær, að fyrirtækið sem gerði módelið vill ekki birta það almenningi. Það gæti hakkað sig inn í viðkvæmustu tölvukerfi heims og hefur fundið þúsundir hættulegra galla í hugbúnaði.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Danni spilaði nýtt með Violet Grohl, Ágústi & Unu Torfa og Death Cab for Cutie.
Lagalistinn:
Daði Freyr Pétursson - Hot damn
Violet Grohl - Thum
Robyn - Talk To Me
Ivar Klausen - Lucky me
Flott - Tuttugu og eitthvað
Jeff Who? - The morning after you
Harry Styles - American Girls
Tom Petty & the Heartbreakers - American girl
Vance Joy - Fascination in the Dark
Death Cab for Cutie - Riptides
Birnir - Alveg farinn
BLUR - Girls And Boys
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll
Frank Sinatra & Count Basie and his Orchestra - Fly me to the moon
Foo Fighters - Learn to fly
LENNY KRAVITZ - Fly Away
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina
Bubbi Morthens & Kristmundur Axel - Kominn heim
H.Mar - Kartöflutóbak
Swift, Taylor - Elizabeth Taylor
The Verve - Bitter Sweet Symphony
Lykke Li - Lucky Again.
MT Jones - I Don't Understand
The B52´s - Rock lobster
Beabadoobee & The Marias - All I Did Was Dream Of You
Moses Hightower - Ráðahagur
Fleetwood Mac - Everywhere
Krummi - Smile till it ends
Noah Kahan - The Great Divide
Árný Margrét - Hakk og spaghettí
Kingfishr - The Blade
Raggi Bjarna & Milljónamæringarnir - Smells Like Teen Spirit
Foo Fighters - Your Favorite Toy
Wet Leg - Chaise Longue
Warmland - Superstar minimal.
Bonobo & Andreya Triana - The Keeper
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Ívar Klausen sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu, metnaðarfullt verk sem einkennist af mikilli spilagleði og fjölbreytileika. Ívar miðlar hér reynslu sinni úr ólíkum áttum, allt frá þungarokki yfir í djass og popp. Við settumst niður og ræddum ferilinn fram að þessu, mennska tónlist, Dio og allt þar á milli. Svo hlustum við auðvitað á lögin af plötunni ásamt kynningum.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst við tilraunastarfsemi í upptökuveri en þróaðist svo yfir í að verða hljómsveit. Sveitin hefur gefið út tvö lög eins og er og stefnir á plötuútgáfu í haust.
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður
Emma - Dream On
Blairstown - DAGBÓK HAUKS
Venus Volcanism - Katara’s Lament
Dymbrá - Lokbrá
Grýbos - Úllen Dúllen Doff
Grýbos - Running Out Of Time
Grýbos - It Comes To Light
Ateria - Saga fyrrverandi verðandi fiðrildis