Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Gylfi Ólafsson sagði okkur frá Fossavatnsgöngunni, sem fer fram á laugardaginn. Gangan er elsta skíðagöngumót Íslands.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Tollamálin voru rædd, sömuleiðis kosningar framundan í bæði Kanada og Ástralíu og ný ríkisstjórn í Þýskalandi.
Heimilisfriður er meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum. Þar starfar Andrés Proppé Ragnarsson sálfræðingur, og hann sagði frá starfseminni. Hátt í 300 manns koma þangað nýir á hverju ári, og meðferðin hefur gagnast vel.
Í síðasta hluta þáttarins kom til okkar Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur, og ræddi um Hallgrímskirkju og lestur Passíusálmanna þar á föstudaginn langa.
Tónlist:
Benjamín Gísli Tríó - Line of Thought.
Benjamín Gísli Tríó - Simba.
Benjamín Gísli Tríó - Rökkur.


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Hrefna Sigfinnsdóttir er framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. Hún vann hjá afa sínum og ömmu á skrúfubarnum í BYKO og kynntist á Stuðmannaballi á Selfossi og er þakklát mentorum sínum og samferðafólki

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.
Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson)
Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson
Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Evrópusambandið ætlar að fresta því að hækka tolla á bandarískar vörur, eftir kúvendingu Bandaríkjaforseta í gærkvöld - en áfram verður unnið að undirbúningi tollahækkana, náist ekki að semja innan þriggja mánaða.
Frestun á gildistöku tollanna kom ráðgjöfum forsetans í opna skjöldu. Ótti við fjármálakreppu er talinn hafa ráðið ákvörðuninni. Dósent í viðskiptafræði líkir yfirlýsingunum við jójó.
Hryðjuverkaógn á Íslandi hefur aukist lítillega að mati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Ógn er talin stafa fyrst og fremst af ofbeldissinnuðum mönnum, í litlum hópum, eða einum síns liðs, sem sæki hvatningu í hægri öfga áróður .
Atvinnuráðherra segir ekki standa til að bakka með veiðigjald þrátt fyrir þráláta og harða gagnrýni frá stjórnarandstöðunni á þingi.
Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga aukist lítillega milli mánaða.
Matvælastofnun ætlar sjálf að meta hvort snjóflóð gætu valdið því að lax slyppi úr fyrirhuguðum eldissvæðum í Seyðisfirði. Yfir 13 þúsund manns mótmæla eldinu.
Vel var tekið á móti Höllu Tómasdóttur forseta í Þrándheimi í morgun. Hún leit við í háskólanum þar sem hún talaði við íslenska nemendur.
Ísland getur í kvöld tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta. Það yrði þriðja stórmót liðsins í röð. Eins og í gærkvöld verður leikið við Ísrael fyrir luktum dyrum.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta spilar nú tvo leiki við ísraelska landsliðið um laust sæti á heimsmeistaramóti sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi í haust. Íþróttafréttamennirnir Valur Páll Eiríksson og Einar Örn Jónsson segja öskrandi tvískinnung að Rússum sé vísað úr alþjóðlegum íþróttamótum á meðan Ísrael fær að taka þátt.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: samfelagid@ruv.is
Í dag er Samfélagið á UTmessunni í Hörpu, þar sem tækni- og tölvufólk messar yfir hvert öðru um allt það helsta í heimi tækninnar. Við ræðum við hina og þessa, meðal annars um gervigreind, sem er ansi plássfrek á UTmessunni, gagnaflækjur, heilbrigðistækni, upplýsingatæknilögfræði, nýjar kynslóðir þráðlauss nets og frelsi frá vinnu.
Eyðibýlið er viðtals og tónlistarþáttur þar sem viðmælandi er settur í þá stöðu að verða að dvelja í eina viku í einangrun á eyðibýli. Þar hefur hann allt til alls nema fjölmiðla og fjarskiptatæki. Til að stytta honum stundir fær hann að velja nokkur lög til að hlusta á, eina bók til að lesa og svo eitt þarfaþing sem hann má hafa með sér. Í þættinum gerir viðmælandinn grein fyrir vali sínu og svo því helsta sem hann myndi taka sér fyrir hendur í þessar einnar viku einveru.
Viðmælandi Héðins Halldórssonar er Kristín Marja Baldursdóttir, rithöfundur.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Á nýliðnum alþjóðadegi jökla, þann 21. mars, opnaði sýning undir yfirskriftinni Kynslóðir jökla í nýtilkominni menningarmiðstöð í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu. Sýningin er ferðalag í gegnum sögu jöklabreytinga og myndefnið spannar tímabil mikilla breytinga á hvorutveggja, hinni sjónrænu arfleifð og ásjónu jökla. Jöklafræðingurinn Hrafnhildur Hannesdóttir og sýningarstýran Anna Diljá Sigurðardóttir fylgdu okkur um sýninguna.
Nína Hjálmarsdóttir rýnir í dansverk Ernu Ómarsdóttur og Íslenska dansflokksins, Hringi Orfuesar og annað slúður.
Þá hugum við að tónlistarhátíð sem hefst í Hörpu á mánudagskvöld og ber heitið Reykjavík Early Music Festival. Dagskrá hátíðarinnar er hin glæsilegasta, þar sem nokkrir frambærilegustu snemmtónlistarhópar samtímans troða upp. Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðluleikari og ein aðstandenda hátíðarinnar mætir í hljóðstofu.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Nú um helgina fór í loftið síðasti þátturinn í þriðju þáttaröð White Lotus, hinna vinsælu þátta sem gerast á lúxusdvalarstöðum víða um heim sem eru þó allir hluti af hótelkeðju Hvíta Lótussins. Brynja Hjálmsdóttir gagnrýnandi Lestarinnar saknar Tanyu McQuoid úr seríunni.
Við ætlum líka að heimsækja Gallerí Port þar sem nú stendur yfir sýningin Hagvextir og saga þjóðar. Fjórir einstaklingar sem vinna á mörkum hönnunar og listar koma þar saman og fást við töluleg gögn, gröf og hagfræðilegar stærðir. Við hittum Búa Bjarmar Aðalsteinsson forsprakka hópsins.
Högni Egilsson segir frá upplifun sinni af því að koma fram á ráðstefna Karls Bretakonungs um loftslagsmál sem fór fram í Hampton Court höllinni í síðasta mánuði, Sustainable Markets Initiative. Högni kom þar fram ásamt Andra Snæ Magnasyni, og hefur reynslan og mótsagnirnar setið í honum: loftslagsmál og kapítalismi, viðskipti og menning. Högni flytur hugleiðingar hirðfífls.
Og svo ætlum við að fræðast um Píslarsögu Jóhönnu af Örk - klassíska kvikmynd danans Carls Theodors Dreyers frá 1928, sem verður sýnd á Bíótekinu nú um helgina.
Fréttir
Fréttir
Greiningardeild ríkislögreglustjóra segir að nokkrir einstaklingar, bæði erlendir og íslenskir, hafi bæði vilja og getu til að fremja hryðjuverk hér á landi.
Íslensk fyrirtæki sem vilja stunda viðskipti við bandaríska sendiráðið verða að staðfesta að þau vinni ekki eftir stefnu sem stuðlar að fjölbreytni, jafnrétti og inngildingu. Utanríkisráðuneytið ætlar að skoða málið með aðilum vinnumarkaðarins og í samtali við bandaríska sendiráðið.
Alþingi er komið í páskafrí en mörg af lykilmálum ríkisstjórnarinnar bíða afgreiðslu að því loknu.
Landsréttur staðfesti í dag átta ára dóm yfir Pétri Jökli Jónassyni í langstærsta kókaínmáli sem upp hefur komið hér á landi.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sérfræðingar í atvinnuvegaráðuneytinu töldu strax í desember að sú breyting að miða verð á uppsjávarfiski við verð á uppboðsmörkuðum í Noregi væri einföld í útfærslu, lagatæknilega séð. Ef vel væri haldið á spilunum væri hægt að koma fram með frumvarp strax á vorþingi. Þeir lögðu líka áherslu á mikilvægi samráðs og að hafa þyrfti í huga að fyrirkomulag veiða og vinnslu í Noregi væri ólíkt því sem tíðkaðist hér á landi.
Gerræðisleg vinnubrögð Donalds Trumps og yfirlýsingar um tollheimtu eru ekki líkleg til að laða fjárfestingu að Bandaríkjunum og það á eftir að taka langan tíma fyrir bandarísk stjórnvöld að öðlast traust á ný að dómi hagfræðiprófessor
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Meiri mold, meiri mold! (Ísland)
Tröllin sem reyndu að stela Færeyjum (Færeyjar)
Skarfurinn og æðarfuglinn (Færeyjar)
Kókoshnetutréð (Pólýnesía)
Leikraddir:
Adam Ernir Níelsson
Andri Már Helgason
Helgi Már Halldórsson
Sigurður Ingi Einarsson
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Veðurfregnir kl. 18:50.

Hlustendum veitt innsýn í efnisskrá tónleika kvöldsins.

Beinar útsendingar frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar.
Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson)
Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson
Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Nú um helgina fór í loftið síðasti þátturinn í þriðju þáttaröð White Lotus, hinna vinsælu þátta sem gerast á lúxusdvalarstöðum víða um heim sem eru þó allir hluti af hótelkeðju Hvíta Lótussins. Brynja Hjálmsdóttir gagnrýnandi Lestarinnar saknar Tanyu McQuoid úr seríunni.
Við ætlum líka að heimsækja Gallerí Port þar sem nú stendur yfir sýningin Hagvextir og saga þjóðar. Fjórir einstaklingar sem vinna á mörkum hönnunar og listar koma þar saman og fást við töluleg gögn, gröf og hagfræðilegar stærðir. Við hittum Búa Bjarmar Aðalsteinsson forsprakka hópsins.
Högni Egilsson segir frá upplifun sinni af því að koma fram á ráðstefna Karls Bretakonungs um loftslagsmál sem fór fram í Hampton Court höllinni í síðasta mánuði, Sustainable Markets Initiative. Högni kom þar fram ásamt Andra Snæ Magnasyni, og hefur reynslan og mótsagnirnar setið í honum: loftslagsmál og kapítalismi, viðskipti og menning. Högni flytur hugleiðingar hirðfífls.
Og svo ætlum við að fræðast um Píslarsögu Jóhönnu af Örk - klassíska kvikmynd danans Carls Theodors Dreyers frá 1928, sem verður sýnd á Bíótekinu nú um helgina.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.
Við ræðum hagræðingaraðgerðir í Kópavogu við Andra Stein Hilmarsson bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjarfulltrúa Pírata.
Við höldum áfram að ræða umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu en í fréttum í gær var það nefnt að ríkisstjórnin ætli ekki að taka opinbera afstöðu til málsins áður en til atkvæðagreiðslunnar kemur -en vill styðja við upplýsingagjöf til almennings. Og þá nefndi forsætisráðherra að verið væri að skoða hvort það eigi að fara í fjárveitingu til að styrkja málstofur og umræðu því umræðan þyrfti að vera málefnaleg og sanngjörn. En getur ríkið með fjármagni tryggt slíkt? Við ræðum við Andrés Jónsson, almannatengil.
Róbert Farestveit, aðalhagfræðingur ASÍ, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við höldum áfram að ræða afnám samsköttunar hjóna og sambýlisfólks.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur, ræðir við okkur um sögulegt samhengi sniðgangna og mótmæla í íþróttum í ljósi leikja Íslands og Ísrael í handboltanum.
Fer minni okkar og heilaheilsu raunverulega hrakandi? Á hið umtalaða heilaþrot eða brainrot stoð í raunveruleikanum? Hvað getum við gert til að vinna gegn þeirri þróun? Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir Sérfræðingur í klínískri sálfræði og stofnandi heilaheilsu ræðir við okkur um það.


Létt spjall og lögin við vinnuna.
Við heyrum af manninum sem segir að Robert Smith, söngvari The Cure hafi reynt að fara í sleik við hann, Við heyrðum einnig um þrjá listamenn sem hafa náð öðru sæti á bandaríska vinsældarlistanum en listamenn sem koveruðu þeirra lög náðu toppsætinu.
Við heyrðum um tvær risa hip hop plötur sem komu út þennan dag árið 1990 og margt annað skemmtilegt.
Tónlist frá útsendingarlogg 2025-04-10
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON OG MEMFISMAFÍAN - Þitt auga.
U2 - Beautiful Day.
ARCADE FIRE - No Cars Go.
DAVID BOWIE & PAT METHENY - This Is Not America.
My Morning Jacket - Time Waited.
Gladys Knight and The Pips - Midnight Train To Georgia.
David, Damiano - Born With A Broken Heart.
Fleet Foxes, Cyrus, Noah - Don't Put It All On Me.
St. Vincent - DOA (From Death of a Unicorn).
Birnir - LXS.
STJÓRNIN - Allt sem ég þrái.
ENIGMA - Return To Innocence.
Inspector Spacetime - Hlaupasting.
THE CULT - Edie (Ciao Baby).
Haim hljómsveit - Relationships.
Bríet - Hann er ekki þú.
Pulp - Common people.
THE CURE - Close To Me RMX.
BLINK 182 - I miss you.
Coldplay - Feelslikeimfallinginlove.
Skriðjöklar - Bíllinn minn og ég.
Lizzo - Still Bad.
BYRDS - Mr. Tambourine Man.
MANFRED MANN - Blinded by the light.
Laufey - Silver Lining.
DEEE-LITE - Groove is in the heart.
Fleet Foxes, Cyrus, Noah - Don't Put It All On Me.
Jón Jónsson Tónlistarm., Una Torfadóttir - Vertu hjá mér.
Bon Iver - Everything Is Peaceful Love.
A TRIBE CALLED QUEST - Can I Kick It.
GEORGE MICHAEL - Outside.
Sigríður Beinteinsdóttir, Celebs - Þokan.
CeaseTone - Only Getting Started.
Caldwell, Bobby - What You Won't Do For Love.
DEPECHE MODE - I Feel You.
Kári Egilsson - One Last Goodbye - Kynning (Plata vikunnar vika 14 2025).
Kári Egilsson - One Last Goodbye.
MADONNA - Hung Up.
BEASTIE BOYS - Get it together.
Chappell Roan - The Giver.
ÁSGEIR TRAUSTI - Nýfallið regn.
Fjöll - Holur.
Boone, Benson - Sorry I'm Here For Someone Else.

Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Evrópusambandið ætlar að fresta því að hækka tolla á bandarískar vörur, eftir kúvendingu Bandaríkjaforseta í gærkvöld - en áfram verður unnið að undirbúningi tollahækkana, náist ekki að semja innan þriggja mánaða.
Frestun á gildistöku tollanna kom ráðgjöfum forsetans í opna skjöldu. Ótti við fjármálakreppu er talinn hafa ráðið ákvörðuninni. Dósent í viðskiptafræði líkir yfirlýsingunum við jójó.
Hryðjuverkaógn á Íslandi hefur aukist lítillega að mati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Ógn er talin stafa fyrst og fremst af ofbeldissinnuðum mönnum, í litlum hópum, eða einum síns liðs, sem sæki hvatningu í hægri öfga áróður .
Atvinnuráðherra segir ekki standa til að bakka með veiðigjald þrátt fyrir þráláta og harða gagnrýni frá stjórnarandstöðunni á þingi.
Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga aukist lítillega milli mánaða.
Matvælastofnun ætlar sjálf að meta hvort snjóflóð gætu valdið því að lax slyppi úr fyrirhuguðum eldissvæðum í Seyðisfirði. Yfir 13 þúsund manns mótmæla eldinu.
Vel var tekið á móti Höllu Tómasdóttur forseta í Þrándheimi í morgun. Hún leit við í háskólanum þar sem hún talaði við íslenska nemendur.
Ísland getur í kvöld tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta. Það yrði þriðja stórmót liðsins í röð. Eins og í gærkvöld verður leikið við Ísrael fyrir luktum dyrum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Margrét Erla Maack
Lovísa Rut var í sólskinskapi í Popplandi dagsins enda stutt í helgina. Árni Matthíasson og Júlía Aradóttir gerðu upp plötu vikunnar, My Static World með Kára Egils. Annars allskonar fjölbreytt tónlist, póstkort og frumflutningur á nýjum lögum frá Steinunni Jóns, Emmsjé Gauta og Króla.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi.
M.I.A. - Paper Planes.
Ágúst Þór Brynjarsson - Eins og þú.
SVALA - The Real Me.
KLANGKARUSSELL - Sonnentanz Feat Will Heard.
Dacus, Lucy - Best Guess.
Rakel Sigurðardóttir, Kári the Attempt - I don't know who you are.
CHANGE - Yakkety yak smacketty smack.
Pulp - Disco 2000.
Þorsteinn Einarsson - Á köldum kvöldum.
Steinunn Jónsdóttir - Stiklað á stóru.
Steinunn Jónsdóttir - Á köldum kvöldum.
Mono Town - The Wolf.
KÁRI - Something Better.
KÁRI - Sleepwalking.
Kári Egilsson - Midnight Sky.
KÁRI EGILSSON - Midnight Sky.
Kári Egilsson - Another One Begins.
Kári Egilsson - In The Morning.
Kári Egilsson - Carry You Home.
PAUL SIMON - Diamonds On The Soles Of Her Shoes.
Nýdönsk - Fyrsta skiptið.
Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík.
STEVIE WONDER - Pastime paradise.
GARBAGE - Stupid girl.
Loreen, SAGES, Ólafur Arnalds, SinfoniaNord - In the Sound of Breathing.
Viagra Boys - Uno II.
N.E.R.D. - She Wants To Move.
EMMSJÉ GAUTI - Malbik.
Jay-Z - 99 problems.
Fleet Foxes, Cyrus, Noah - Don't Put It All On Me.
St. Vincent - DOA (From Death of a Unicorn).
Birnir - LXS.
FRANZ FERDINAND - Do You Want To.
Dare, The - Girls (Clean).
WET LEG - Wet Dream.
David, Damiano - Born With A Broken Heart.
Auðunn Lúthersson - Sofðu rótt.
JUNGLE - Talk About It.
JAGÚAR - Disco Diva.
HIPSUMHAPS - Fyrsta ástin.
LAUFEY - Silver Lining.
GUSGUS & BIRNIR - Eða?
ÁSDÍS - Touch Me.
I Monster - Daydream In Blue.
Wallace Collection - Daydream.
NEIL FRANCES - Music Sounds Better With You.
ST. VINCENT - DOA.
MØ, DJ SNAKE & MAJOR LAZER - Lean On.
LORD ECHO - Thinking of You (feat. Lisa Tomlins)
Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við byrjuðum þáttinn í dag að kíkja út í heim með Hallgrími Indriðasyni fréttamanni.
Ársæll Guðmundsson, skólameistari í Borgarholtsskóla kom til okkar en hann sagði í viðtali við mbl fyrr í dag í dag að það stefni í óefni í haust þegar kemur að innritun nemenda í framhaldsskóla. Árgangurinn sem nú er að útskrifast úr 10. bekk sé sá fjölmennasti í sögunni. Meira fjármagn vanti til að geta boðið öllum upp á nám. Ársæll kom til okkar.
Tugir þúsunda koma saman í Houston Texas í næstu viku þar sem HM í Lego fer fram. Það sem okkur úr Síðdegisútvarpinu þykir merkilegt við það er að nokkrir grunnskólanemar frá Vopnafirði taka þátt. Liðið heitir DODICI og er óhætt að segja að það séu fulltrúar okkar íslendinga á heimsmeistaramótinu í Lego. Við hringdum austur og ræddum við Sólrúnu Dögg Baldursdóttur kennara.
Skúli Helgason heldur stóreflis góðgerðartónleika í Iðnó í kvöld þar sem miklar kempur stíga á svið og allur ágóði rennur í sjóð til styrktar geðrækt barna og ungmenna. Þarna verða Mugison, GDRN, Ragga Gísla með hljómsveit, Emmsjé Gauti, Inspector Spacetime, Ra:tio (DJ) og svo Páll Óskar. Við hringdum í Skúla.
Frá 1972 hefur Lions selt Rauðu fjöðrina til góðs málefnis. Nú rennur ágóðinn af sölunni til Píeta samtakanna og forvarnarverkefnis þeirra fyrir ungt fólk. Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta samtakanna kom til okkar.
Pínu lítill fugl hvíslaði því að okkur að lóum og spóum fari fækkandi hér á landi. Þetta eru auðvitað ekki góð tíðindi þar sem sumarið er rétt handan við hornið. Við setjum okkur í sambandi við Tómas Grétar Gunnarsson vistfræðing sem hefur fylgst náið með þróun mála á þessu sviði.
Og við ræddum líka við Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóra Golfsambandsins um golfsumarið framundan, nýliðun í golfi, græna jakkann og margt fleira.
Fréttir
Fréttir
Greiningardeild ríkislögreglustjóra segir að nokkrir einstaklingar, bæði erlendir og íslenskir, hafi bæði vilja og getu til að fremja hryðjuverk hér á landi.
Íslensk fyrirtæki sem vilja stunda viðskipti við bandaríska sendiráðið verða að staðfesta að þau vinni ekki eftir stefnu sem stuðlar að fjölbreytni, jafnrétti og inngildingu. Utanríkisráðuneytið ætlar að skoða málið með aðilum vinnumarkaðarins og í samtali við bandaríska sendiráðið.
Alþingi er komið í páskafrí en mörg af lykilmálum ríkisstjórnarinnar bíða afgreiðslu að því loknu.
Landsréttur staðfesti í dag átta ára dóm yfir Pétri Jökli Jónassyni í langstærsta kókaínmáli sem upp hefur komið hér á landi.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Sérfræðingar í atvinnuvegaráðuneytinu töldu strax í desember að sú breyting að miða verð á uppsjávarfiski við verð á uppboðsmörkuðum í Noregi væri einföld í útfærslu, lagatæknilega séð. Ef vel væri haldið á spilunum væri hægt að koma fram með frumvarp strax á vorþingi. Þeir lögðu líka áherslu á mikilvægi samráðs og að hafa þyrfti í huga að fyrirkomulag veiða og vinnslu í Noregi væri ólíkt því sem tíðkaðist hér á landi.
Gerræðisleg vinnubrögð Donalds Trumps og yfirlýsingar um tollheimtu eru ekki líkleg til að laða fjárfestingu að Bandaríkjunum og það á eftir að taka langan tíma fyrir bandarísk stjórnvöld að öðlast traust á ný að dómi hagfræðiprófessor
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Emmsjé Gauti, Króli - 10 Þúsund (Explicit).
Steinunn Jónsdóttir - Stiklað á stóru.
Julian Civilian - Ég vil tala við þig.
Kanzlarinn - Love-Light.
Rakel Sigurðardóttir, Kári the Attempt - I don't know who you are.
Fjöll - Holur.
Blairstown - Heim.
Kanzlarinn - Love-Light

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Rósa Birgitta Ísfeld.
Nóg af nýrri tónlist á kvöldvaktinni. Beðið er eftir útgáfum með Surprise Chef, Julia Mestre, Stereolab, Souleance. Ambre Ciel ofl. Spilaði nokkrar góðar úr rappheiminum þar á meðal Doechii, Silkiettina, Little Simz, Trina, Noname og Reykjavíkurdætur.
Nýdönsk - Fyrsta skiptið
Σtella - 80 Days
Khruangbin - Mariella
Surprise Chef - Consulate Case
Move 78 - Mondrian Blocks
Julia Mestre - Vampira
Gitkin - Edrach N´tarha
José James - Rock with you
Mono Town - The Wolf
Quantic, Dj Kicks - Eko Eko
Neal Francis & Say She She
Neil Frances - Dancing
Supersport! - Stærsta Hugmyndin
Amyl and the Sniffers - U should not be doing that
Spacestation - Fun Machine
Stereolab - Aerial Troubles
Little Simz - Free
Noname - Diddy Bop
Silkikettirnir - Turninn
Trina - On you
Doechii - Nissan Altima
Reykjavíkurdætur - Hæpið
Kusk & Óviti - Læt frá mér læti
Souleance - No Dancing
Pitenz - Kvöldskip
Lenny Kravitz – Let it ride ( Jamie Jones remix)
Kae Tempest - Statue in the Square
Greentea Peng - Whatcha mean
Beck - Get real paid
Kraftwerk - -Trans Europa Express
Alexander Flood - Artifact
Pieces, Falling - Gold Panda
Aurora - Runaway
Ambre Ciel - The sun, The sky

Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.