ok

Kastljós

Heimilisofbeldi, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Helvítis fordómar

Viktoria Þórunn Kristinsdóttir sem beitt var ofbeldi af sambýlismanni telur að hagsmunir hans vegi þyngra en hennar. Hann játaði sök en var ekki gerð refsing þar sem matsmaður taldi að sökum geðsjúkdóms hafi hann verið ófær um að hafa stjórn á ofbeldinu. Þá var refsing ekki talin líkleg til að gera honum gagn. Konan segir að sér finnist sem sjúkdómurinn sé notaður sem afsökun fyrir ofbeldinu, hún gangi um með öryggishnapp, en hann sé laus. Í viðtalinu lýsir hún ofbeldinu sem hún varð fyrir og því úrræðaleysi sem blasi við henni, sem meðal annars lýsi sér í því að dóminum hafi ekki verið áfrýjað.

Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar ræddi um þau úrræði sem eru í boði fyrir fólk með geðraskanir og lagarammann í þessum málum. Úrbóta sé þörf og mikilvægt að auka ekki á fordóma.

Í gömlu Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri stendur nú yfir sýningin Þessir helvítis fordómar. Þar hefur listakonan Anna María Hjálmarsdóttir sett upp sýningu með verkum sem öll spegla á einn eða annan hátt fordóma í samfélaginu.

Frumsýnt

25. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,