ok

Kastljós

Hvalasafnið á Húsavík, úkraínskt leikrit, Litapalletta

Hafsvæðið norður af Húsavík fékk í vor viðurkenninguna Hope spot eða vonarsvæði. Eva Björk Káradóttir, framkvæmdarstjóri Hvalasafnsins á Húsavík er einn þeirra sem staðið hafa að því að fá hafsvæðið við Skjálfandafljót og allt norður fyrir Grímsey viðurkenninguna. Við skoðum hvað það þýðir að fá slíka viðurkenningu og kynntum okkur sjálfboðaliðasamtökin, Ocean Missinos á Húsavík.

Við kíktum á æfingu hjá leikhóp sem samsettur er af flóttafólki frá Úkraínu og Venesúela. Hópurinn sem upprunalega var settur saman til að læra saman íslensku en að lokum ákvað hópurinn að setja upp leiksýningu. Leikverkið er flutt nær eingöngu á íslensku

Gamla Ísland birtist okkur oft í svarthvítu en á því eru undantekningar. Við skoðum ljósmyndasýninguna, Liðni tímar í lit sem sýnd var í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Frumsýnt

29. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,