1. maí 2026
Gestir þáttarins eru Arnór Björnsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson.
Vikan með Gísla Marteini í beinni frá Akureyri!
Gestir þáttarins eru Birgitta Haukdal, Logi Einarsson og Vilhjálmur B. Bragason.
Leikhópurinn úr Birtíngi kíkir í heimsókn.
Berglind Festival kynnir sér akureyrska menningu.
Saint Pete slær botninn í þáttinn með glænýju lagi.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.