Stríð og friður
Í þessum lokaþæti fjalla Bergsson og Blöndal um stríð og deilur Íslendinga. Einvígi aldarinnar og dömubindi koma við sögu sem og herstöðvarandstæðingar og herskáir skipherrar - og…
Í þættinum fjalla Bergsson og Blöndal um sambandið við erlent fólk sem vildi sækja okkur heim. Veiðimenn, listamenn, ævintýramenn, stjórnmálamenn, háhyrningar, konungar og drottningar koma við sögu og fá að sjálfsögðu spurninguna „How do you like Iceland?“.

Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur. Að þessu sinni skoða þau ýmsa þætti í íslensku mannlífi sem flestir þekkja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.