Flatey á Breiðafirði
Sverrir Þór og Gunnar Karl halda veislu í hinni rómuðu Flatey á Breiðafirði með dyggri aðstoð heimamanna og annarra sem þar dvelja. Hljómsveitin GÓSS er þar á meðal og aldrei að vita…
Hrísey er næsti áfangastaður Sverris Þórs og Gunnars Karls og þeir banka upp á hjá sveitungum í leit að hráefni fyrir veisluna. Þar er Gunnar Karl á heimavelli enda ættaður úr Eyjafirði. Saltfiskur frá fimmtu kynslóðinni, guðdómlegt krydd, 700 hænur, lögreglan í Hrísey og leynibar er bara brot af því besta sem Norðurland hefur upp á að bjóða. Já, og hver er þessi Sævar?

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið og kynnast matarmenningu þjóðarinnar. Í þriðju þáttaröð Veislunnar leiða þeir félagar áhorfendur í ævintýraferðir um hinar ýmsu eyjar.