Sjö tindar á Kili og kajakróður
Hér er gengið á og klöngrast um sjö hæstu tindana á Kili með háfjallahöfðingjanum Þorvaldi Þórssyni sem fyrstur Íslendinga kortlagði og gekk á 100 hæstu fjöll Íslands. Gengið er á…
Við sláumst í för með hópum Íslendinga í tvær ævintýraferðir erlendis. Hin fyrri er klettagönguferð í Dólómítafjöllum á Ítalíu sem er ekki fyrir lofthrædda. Í hinni síðari er gengið á milli fjallakofa í víðernum Harðangurs í Noregi sem er ekki ferð fyrir kuldaskræfur. Í síðari hluta þáttarins klifra Jói Pé og Króli í Akrafjalli undir styrkri leiðsögn þrautreyndra klettaklifrara.

Ferðaþættir í umsjá útivistarhjónanna Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall þar sem þau ferðast með fólki um ósnortna náttúru Íslands.