Hlúðu að táknmálinu!
Hjördís Anna tekur þátt í umræðu um hvernig íslenskt táknmál eigi að líta út og hvaða þættir hafi áhrif á að sum tákn falla úr notkun. Hún hittir yngri kynslóðina og ræðir slangur…
Ferðast er aftur í tímann til að sjá hvernig íslenskt táknmál hefur þróast. Anna Jóna, Ingibjörg og Rúdólf rifja upp táknin eins og þau voru áður fyrr. Hjördís Anna ræðir við fræðimenn og ungt fólk um íslenskt táknmál og leit að nýjum táknum.

Heimildarþættir um þróun íslensks táknmáls frá fyrri tíð til dagsins í dag. Skoðað er hvaða samfélagslegu, menningarlegu og málfræðilegu áhrif móta íslenskt táknmál nútímans, hvað felst í vönduðu íslensku táknmáli og hvernig málið stendur í samanburði við önnur táknmál. Hjördís Anna Haraldsdóttir ræðir við fræðimenn og sérfræðinga í íslensku táknmáli auk notenda málsins í leit að ólíkum sjónarhornum og svörum um stöðu og framtíð málsins.