Sumarlandinn 2023

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 3 af 9

Við heimsækjum ábúendur í Ásólfsskála undir Eyjafjöllum þar sem lögð er stund á ýmis verk auk hefbundins landbúnaðar. Þar er dráttarvélasafn og þar er líka myndlistarkona að störfum.

Við förum á námskeið í örveruvistfræði norðurslóða og leitum að örverum í fjörunni við Árskógssand. Við förum í fjallgöngu með leikskólabörnum á Ísafirði.

Við tökum þátt í skapandi sumarstörfum með börnum í Neskaupstað og við förum í pödduleit í Elliðaárdal með Ferðafélagi barnanna og Háskóla Íslands.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Sumarlandinn 2023

Í Sumarlandanum förum við út og suður, vítt og breitt, langt yfir skammt og allt þar á milli. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Elsa María Drífudóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Halla Ólafsdóttir, Þórdís Claessen, Jóhann Alfreð Kristinsson og Steiney Skúladóttir. Tónlistarkonan Árný Margrét sér um tónlistina. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Elvar Örn Egilsson, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Karl Sigtryggsson. Ritstjóri: Gísli Einarsson.

Þættir

,