Anna Gréta og Silva Þórðar
Söngkonurnar Silva Þórðardóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir bjóða upp á sérvalda standarda á Jómfrúartorginu. Hljómsveitina skipa Sigurður Flosason, Þorgrímur Jónsson og Einar Scheving.
Söngkonurnar Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Selma Björnsdóttir flytja söngleikjalög í jazz-búningi. Hljómsveitina skipa Agnar Már Magnússon, Birgir Steinn Theódórsson og Jóhann Hjörleifsson.

Beinar útsendingar frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Umsjón: Felix Bergsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.