Í þessum þætti setja Bolli og Bjalla á svið frægt verk eftir leikskáldið Vilhjálm Hristispjót, verkið Rómeó og Júlía. Í framhaldinu komast þau að því að það eru til miklu fleiri kyn og kynhneigðir en þau héldu.
Álfanir laumast aftur í íþróttatíma með Bjarma og að þessu sinni mætast liðin Tvibbarnir og TM.
Tímaflakkið fer svo með okkur í ferðalag og sjáum við gamalt innslag úr Stundinni okkar um Tjáálfana Börk Birki og Reyni Víði.