Þáttur 6 af 6
Þörfin fyrir að dansa brýst út við ólíklegustu aðstæður. Við dönsum ein, umkringd fólki, í myrkri, sundi og á sjúkrahúsum. Dansgleðin er aðstæðum, kunnáttu og takmörkunum yfirsterkari…
Dans talar til okkar á ólíka vegu. Hann hreyfir við okkur, veitir útrás og miðlar mikilvægum skilaboðum. Þegar við sameinumst í dansi leysist kraftur úr læðingi sem knýr áfram breytingar á afstöðu og hugmyndum. Í hverju felst pólitískur máttur dansins og hvernig brýst hann fram?

Íslensk þáttaröð í sex hlutum um dans. Þar er leitað svara við spurningum um hvers vegna fólk dansar, hvernig dansgleðin kviknar og hvers vegna sumir fæðast flinkir dansarar en aðrir taktlausir flækjufætur. Farið verður yfir sögu dansins á Íslandi, mismunandi danstegundir kannaðar og við kynnumst því hvernig dansinn brýst fram á ólíklegustu stöðum. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Framleiðsla: Skot.