16. september 2006
Þjóðin vaknar um miðja nótt til að kjósa Magna, stjórnmálamenn lenda í eigin Rock Star-keppni og Spaugstofan skopast að stórmálum samtímans – frá Kárahnjúkum til kosningabrjálæðis.
Þjóðarsöfnun fyrir Baugsmálið fer af stað á meðan Spaugstofan skopast að stjórnmálum, hlerunum og varnarsamningum – þar sem stundum er hringt í vitlaust númer og stundum skrifa aðrir undir samningana.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.