Sólmyrkvaleikar

Leyft öllum aldurshópum

Jörð

„Jörðin snýst hraðar en tunglið, myrkur og skuggi þess búa til nótt. Þegar úlfur gleypir birtu sólar og býr til kórónu alheimsins.“

Skuggaleikhús með frumsaminni tónlist eftir börn á miðstigi í grunnskólum Vestfjarða. Stuttmyndin er afrakstur lista- og vísindasmiðja á Sólmyrkvaleikunum vorið 2026.

Kvikmyndun og klipping: Janus Bragi Jakobsson. Listræn stjórn: ÞYKJÓ og Siggi&Ingibjörg.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd

Sólmyrkvaleikar

Gleypti úlfur sólina eða sveif himnadreki yfir og lokaði auganu í stutta stund? Stuttmyndir sem börn frá Vestfjörðum unnu í skapandi smiðjum.

Grunnskólabörn í 5. - 7. bekk alls staðar á Vestfjörðum komu saman vorið 2026 í skapandi smiðjum sem hverfðust um almyrkva á sólu sem var framundan. Þetta mikla undur var skoðað frá sjónarhornum lista, vísinda, þjóðsagna og skuggaleikhúss. Sólmyrkvaleikar er yfirheiti listaverka barna sem urðu til í samsköpun; stuttmyndir með frumsaminni tónlist og sönglög. Verkefnið leiddu hönnunarteymið ÞYKJÓ, tónlistardúóið Siggi&Ingibjörg og Stjörnu-Sævar, fyrir barnamenningarhátíðina Púkann.

Þættir

,