Paradísarheimt

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 5 af 6

Í þættinum ræðir Jón Ársæll við fjóra einstaklinga sem allir eiga eða hafa átt við geðveiki að stríða. Garðar Sölvi Helgason er annað slagið með ranghugmyndir vegna sjúkdóms síns þar sem hann telur sig vera drottin almáttugan. Sveinn Rúnar Hauksson læknir hefur orðið að leggja hann nauðugan inn á geðdeild og er hann þá iðulega í miklum maníuköstum. Jón Ársæll ræðir einnig við Helga Val Ásgeirsson trúbador, sem sló í gegn í Eurovision á sínum tíma, og móður hans Pálínu Sigurjónsdóttur en bæði hafa átt við geðræna vanda að stríða. Að lokum kynnumst við Eymundi Eymundssyni frá Akureyri sem er með meistarapróf í kvíða, að eigin sögn.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Paradísarheimt

Jón Ársæll Þórðarson ræðir við fólk sem á við geðrænan vanda að stríða. Dagskrárgerð: Steingrímur Jón Þórðarson.

Þættir

,