Þáttur 1 af 6
Karen, gifta þriggja barna móður, grunar að eiginmaðurinn sé henni ótrúr og fer í örvæntingu sinni ótroðnar slóðir í leit að sannleikanum.
Karen og Matti finna gamalkunna nánd sem foreldrar. Nýjar sambandskröfur á Matta rugla hann í ríminu.

Íslensk þáttaröð um Karen, 38 ára hjónabandsráðgjafa og þriggja barna móður, sem stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þegar hún kemst að því að eiginmaður hennar hefur verið henni ótrúr. Hún á erfitt með að fyrirgefa eiginmanninum en það versta sem hún getur hugsað sér eru svokallaðar pabbahelgar. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Framleiðsla: Zik Zak kvikmyndir og Ungar kvikmyndafélag. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.