Þáttur 6 af 6
Við förum á Dýraspítalann í Garðabæ, hittum kettina í Kattholti og tökum þátt í vinnumorgni í Húsdýragarðinum. Við fáum einnig að kynnast lemúrnum sem Vera Illugadóttir ættleiddi fyrir…
Í þættinum fylgjumst við með hvolpinum Snæju taka þátt í hundasýningu. Hugum að selum í sjónum í Miðfirði. Hittum listakonuna Ingu Maríu sem sankar að sér dauðum dýrum. Heimsækjum landnámshænur í Breiðholtinu og rifjum upp hundahreinsunardaginn árið 1973.

Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.