Með okkar augum

Þáttur 6 af 6

Sjónvarpsmaðurinn Gummi Ben kemur í viðtal. Það verður klofað upp á Sólheimajökul með Teiti Þorkelssyni leiðsögumanni. Vigdís Hafliðadóttir leyfir okkur heyra uppáhaldslögin sín. Við fræðumst um sölu á verkum fatlaðra listamanna sem hefur náð nýjum hæðum. Við förum í borðhokkí. Og við förum í vinnuna með Matthíasi Þór Sverrissyni á Skjalasafninu á Egilsstöðum. Arna Sigríður Albertsdóttir gefur heilsuráð í Grasagarðinum.

Frumsýnt

27. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Með okkar augum

Með okkar augum

Þrettánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,