Framlag Íslands, þótt herlaust sé, skiptir Atlantshafsbandalagið miklu segir framkvæmdastjóri þess. Starfsemin á Keflavíkurflugvelli auðveldar því að fylgjast með og Ísland hefur sinnt sínu gestgjafahlutverki vel.
Landsréttur sýknaði í dag knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson af ákæru um nauðgun. Einn af þremur dómurum vildi sakfella.
Rússlandsforseti segir að ekki verði samið um vopnahlé í Úkraínu fyrr en Úkraínuher hörfi frá því landi sem barist er um. Erindreki Bandaríkjastjórnar fundar í næstu viku með Pútín í Rússlandi.
Heimilin í landinu geta glaðst yfir nýjustu verðbólgumælingu Hagstofunnar að mati aðalhagfræðings Kviku banka. Verðbólga hefur ekki verið minni í fimm ár.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson og Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir