Ísland: bíóland

Íslenska kvikmyndasumarið

Verk íslenskra leikstjóra vekja meiri athygli á alþjóðlegum vettvangi en nokkru sinni fyrr. Hópur erlendra kvikmyndasérfræðinga ræðir um árangur íslenskra kvikmynda á alþjóðlegum vettvangi. Einnig er fjallað um feril Sigurjóns Sighvatssonar framleiðanda í Bandaríkjunum og Baltasar Kormákur ræðir um Hollywood-myndir sínar og myndirnar sem hann gerði á Íslandi . lokum er farið yfir stöðuna og horfurnar framundan. Myndirnar sem er um eru Hross í oss, Djúpið, Kona fer í stríð, Hrútar, Hjartasteinn, Þrestir og Hvítur, hvítur dagur.

Frumsýnt

23. maí 2021

Aðgengilegt til

16. apríl 2025
Ísland: bíóland

Ísland: bíóland

Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.

Þættir

,