Hvernig sem viðrar
Þáttaröð frá 2002 þar sem Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Vilhelm Anton Jónsson leggja land undir fót. Þau koma víða við á ferð sinni og er ekkert óviðkomandi, hvort sem það er spennandi ævintýraferð, hjólreiðar um hálendið, leyndar náttúruperlur, skemmtilegar uppákomur, eða rómantískt kvöld á fallegum veitingastað. Ferðamaðurinn fær að sjá land sitt og þjóð í nýju ljósi og fær að fylgjast með fjölbreyttri og skemmtilegri afþreyingu. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Hjördís Unnur Másdóttir.