Hafið
Við spjöllum við tónlistarfólk sem tengist hafinu á ýmsan hátt. Elst upp við það, eða hreinlega á því. Loks taka óvæntir skipsfélagar, þeir Benni Hemm Hemm og Páll Óskar, nýtt lag…
Sumt tónlistarfólk getur ýmislegt annað en sungið og spilað á hljóðfæri. Allskyns listafólk finnur sköpunarkraftinum farveg gegnum hinar ýmsu listgreinar og fremur jafnvel galdur. Fjöllistafólkið Klemens Hannigan og Ásta Fanney fremja einn slíkan fyrir okkur.

Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.