Geisli

Birt

23. júní 2026

Aðgengilegt til

21. sept. 2026
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Geisli

Þáttur um listir og menningu frá árinu 1986.

Stjórnandi: Óli Örn Andreassen. Umsjón: Karitas H. Gunnarsdóttir, Guðný Ragnarsdóttir og Matthías Viðar Sæmundsson.

Guðrún Helgadóttir les kafla úr bók sinni Saman í Hring, sýndar myndir úr bókinni og rætt hana. Farið á saumastofu og niður höfn og fólk spurt um bóklestrarvenjur og bókmenntaval. Rætt er við Andrés Björnsson fyrrverandi útvarpsstjóra um menningu, bókmenntir og fjölmiðla. Farið á sýningu á verkum Ágústs Petersen á Listasafni ASÍ. Páll Eyjólfsson leikur menúett eftir Fernando Soar á gítar.

Sýndar skyggnur af Kvosinni og málin rædd í stúdíói yfir líkani af framtíðarskipulaginu. Viðmælendur; Guðrún Ágústsdóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúar.

Þau Sveinn Skorri Höskuldsson, Soffía Birgisdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir og Guðmundur Ólafsson eru spurð álits á bók Thors, Grámosinn glóir. Rætt er við Thor og hann les kafla úr bókinni við undirleik öldugjálfurs vikunnar. Arnór Benónýsson les pistil um fjölmiðla. Loks leikurPáll annað lag á gítarinn.

,