Þáttur 4 af 4
Jóhönnu eru allar bjargir bannaðar og hennar eina von virðist vera að leysa gátuna. Hún neyðist til þess að brjóta farbannið þegar hún og Kjartan eru viss um að hafa fundið svarið.
Leikin íslensk þáttaröð í fjórum hlutum. Árið 1971 ferðast Jóhanna á æskuslóðir sínar í Flatey til þess að ganga frá málum eftir andlát föður síns. Hún tekur upp þráðinn við rannsókn hans á Flateyjargátunni, gátu sem tengist Flateyjarbók og hefur verið óleyst í 600 ár. Við rannsóknir sínar flækist hún í morðmál og neyðist til þess að takast á við drauga fortíðar til þess að sanna sakleysi sitt. Leikstjórn: Björn B. Björnsson. Aðalhlutverk: Lára Jóhanna Jónsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Hilmir Jensson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Framleiðsla: Sagafilm og Reykjavík Films. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.