Þáttur 1 af 4
Sjö Vestfirðingar voru handteknir sumarið 1941 og þeim gefið að sök að hafa falið ungan þýskan mann. Yngsti fanginn var sautján ára stúlka.
Bretar sökuðu tíu Íslendinga um að vera njósnarar Þjóðverja og settu þá í leynilegt fangelsi. Tveir þeirra gerðust gagnnjósnarar Breta.

Heimildarþættir frá 2023. Í seinni heimsstyrjöldinni handtóku Bretar tæplega fimmtíu Íslendinga, fluttu þá til Englands og lokuðu þá inni mánuðum og árum saman án dóms og laga. Þáttaröðin Fangar Breta segir sögu þessa fólks á fróðlegan hátt.