Sjónvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÚV
RÚV2
Dagskrá
Leit
Þættir
21. Lokalag
Herra Hnetusmjör á lokalag Skaupsins í ár.
20. Ég er Ben
Það hefur hrikt í ríkisstjórnarsamstarfinu og Samfylkingin er orðinn stærsti flokkur landsins í skoðanakönnunum.
19. Loksins leikskólapláss
Halldór fær loksins leikskólapláss eftir langa bið.
18. Teneæði
Hjón sem fara gjarnan til Tenerife ræða þessa venju sína við vinahjón sín.
17. Lífræna tunnan
Árið 2023 var íbúum á höfuðborgarsvæðinu skylt að flokka lífrænt rusl. Við fylgjumst með því hvernig venjulegum heimilisföður gengur að takast á við þessa breytingu.
16. Farið yfir mörk
Barn lætur kennarann sinn ekki komast upp með neitt múður.
15. Jarðfræðifréttir
Eftir jarðhræringar ársins er tímabært að rýna í helstu hugtökin með jarðfræðingum Íslands.
14. Þriðja vaktin
Ingunn stýrir þriðju vaktinni á sínu heimili. Úlfatíminn er í þann mund að hefjast og mörg krefjandi verkefni eru fram undan.
13. Tjörnin Lagoon
Nýjasta baðlónið er í hjarta miðborgarinnar.
12. Stynjandi nágrannar
Hjón fá vart svefnfrið fyrir hávaðanum í nágrönnum sínum. Eiginmaðurinn tekur málin í sínar hendur.
11. Nikótínpúðar
Alma Möller tekur á nikótínfíkn landsmanna.
10. Framtíðin er hérna
Steindi og Auddi nýta sér gervigreindina til að fá alls konar fólk til að syngja með sér í þrusu partílagi.
9. Sjókvíaeldislaxar framtíðarinnar
Frá 2023 hefur Fiskistofa staðið fyrir róttækum aðgerðum og 35 árum síðar hefur ekki enn tekist að útrýma norska eldislaxinum.
8. Allt opið og eðlilegt
Fjölskyldur eru alls konar í nútímasamfélagi.
7. Íslandsbankahlaupið
Afi nokkur sækist eftir því að barnabarn sitt, sem er að fermast, fari í viðskipti við Íslandsbanka. Eitt og annað gengur á þegar þau ræða við þjónustufulltrúa bankans.
6. Fæðingarstofan
Nýbakaðar mæður upplifa breyttar áherslur á fæðingarstofunni.
5. Fyrirlítum samfélagsmiðla
Tveir miðaldra feður eru komnir með alveg nóg af skjánotkun barna og unglinga.
4. Jólagjöfin í ár
Nýtt leikfang sem öll börn elska að leika með.
3. Hvað er að frétta af Gylfa Sig?
Kaffistofuslúðrið á það til að fara aðeins úr böndunum og staðreyndir eru ekki mikil fyrirstaða fyrir því að segja góða slúðursögu.
2. SXL
SXL-hópurinn sló í gegn á árinu sem er að líða. Við fengum að fylgjast með sumarbústaðarferð, þar sem margt óvænt gerðist.
1. Ég fer í vinnuna
Hvalveiðar og hvalveiðibann var áberandi í umræðunni á árinu sem er að líða.
Barnalæsing óvirk
Barnalæsing
Aldurshópur
Allir
12+
16+
Hætta við
,