Andrar á flandri

Írland

Nafnarnir fara yfir til Írlands með ferju og þar heldur leitin Mr. Bean áfram. Í Dyflinni taka Andrarnir lagið með ekta götusöngvara, skoða Guinness-safnið hátt og lágt, virða fyrir sér styttu af forsprakka rokkhljómsveitarinnar Thin Lizzy og heimsækja furðulegt útvarpssafn.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

12. mars 2020

Aðgengilegt til

3. júlí 2026

Andrar á flandri

Þáttaröð í sex hlutum þar sem nafnarnir og sjónvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson úr þáttunum Andri á flandri og Andri Freyr Hilmarsson úr Með okkar augum leggja land undir fót og er ferðinni heitið til Bretlandseyja. Þar freista þeir þess hitta átrúnaðargoð Andra Freys Hilmarssonar, Mr. Bean. Á meðan Andri Freyr Viðarsson reynir komast í samband við leikarann Rowan Atkinson nota nafnarnir tímann og skoða sig um á Bretlandseyjum.

Þættir

,