Á gamans aldri II

Leyft öllum aldurshópum

Rúnar Guðbjartsson

Hinn 92 ára Rúnar Guðbjartsson ákvað að láta gamlan draum rætast og kaupa sér rauðan blæjubíl. Honum finnst fátt skemmtilegra en að bjóða vinum á rúntinn og hlusta á tónlist. Hann starfaði um áratugaskeið sem flugstjóri. Eftir baráttu við bakkus venti hann kvæði sínu í kross og gerðist sálfræðingur 63 ára. Áföll, sorgir og sigrar lita líf Rúnars sem hefur einsett sér að njóta lífsins á gamans aldri.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Á gamans aldri II

Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,