
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að útbúa eftirrétt fyrir börnin sín þegar það yngsta stelur hráefnunum. Eddi verður að ná því aftur svo allt húsið og börnin festist ekki í hlaupi.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Áróra undirbýr óhefðbundna blómagjöf fyrir mömmu sína á konudeginum. Óvæntur gestur, Góa, birtist í loftbelgnum og fræðir Loft um siði tímabilsins – en þegar Þorri mætir blossar upp fjörugur systkinarígur um hvort sé betra: Þorrinn eða Góan?
Stuttir fræðsluþættir um fæðuofnæmi og fæðuóþol. Ungmenni sem þjást af slíku deila reynslu sinni auk þess sem rætt er við ofnæmislækna og aðra sérfræðinga. Framleitt af Skot í samvinnu við Astma- og ofnæmisfélag Íslands.
Kalli og Anna deila reynslu sinni af því að vera ungmenni með fæðuofnæmi og fæðuóþol. Einnig er rætt við ofnæmislæknana Michael Clausen og Sigurveigu Þ. Sigurðardóttur, næringarfræðinginn Fríðu Rún Þórðardóttur og hjúkrunarfræðinginn Tonie Gertin Sørensen. Leikstjóri: Einar Egilsson. Leikarar: Arnaldur Halldórsson og Emelía Þórunn Egilsdóttir.

Keppni í íshokkí á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Samantekt frá viðburðum dagsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson.
Tvö af leiðarstefjum afmælisárs lýðveldisins eru göngur og söngur. Efnt var til samkeppni um nýtt kórlag við ljóð Þórarins Eldjárns, Ávarp fjallkonunnar 2015. Lag Atla Ingólfssonar bar sigur úr býtum. Fjallakórinn undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur gekk á Miðfell í Þingvallasveit og flutti sigurlagið á toppi fjallsins ásamt þjóðsöngnum, en árið 2024 eru 150 ár frá frumflutningi hans.

Áróra undirbýr óhefðbundna blómagjöf fyrir mömmu sína á konudeginum. Óvæntur gestur, Góa, birtist í loftbelgnum og fræðir Loft um siði tímabilsins – en þegar Þorri mætir blossar upp fjörugur systkinarígur um hvort sé betra: Þorrinn eða Góan?

Íslensk lög úr níunni. Hver eru uppáhalds níu-lögin þín? Þættir frá 2023 sem gerðir voru í tilefni 40 ára afmælis Rásar 2.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2.
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Íslensk heimildarmynd frá 2022 um óræð áhrif COVID-19-sjúkdómsins á íslenskt samfélag á árunum 2020 til 2022. Í myndinni er einblínt á persónulega reynslu nokkurra einstaklinga. Leikstjóri: Olaf de Fleur.

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að útbúa eftirrétt fyrir börnin sín þegar það yngsta stelur hráefnunum. Eddi verður að ná því aftur svo allt húsið og börnin festist ekki í hlaupi.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn vaknar í dimmum helli. Þar er risatröllið Rauður með kindahjörð sína og hótar að breyta þeim í sauði nema þau geti leyst þrjár þrautir. Með heppni og klókindum tekst þeim að snúa vörn í sókn. Kindahjörðin ýtir Rauð fram af kletti og breytist aftur í fólk.
Áróra undirbýr óhefðbundna blómagjöf fyrir mömmu sína á konudeginum. Óvæntur gestur, Góa, birtist í loftbelgnum og fræðir Loft um siði tímabilsins – en þegar Þorri mætir blossar upp fjörugur systkinarígur um hvort sé betra: Þorrinn eða Góan?

Keppni í skíðafimi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Lokaathöfn Vetrarólympíuleikanna í Mílanó og Cortina á Ítalíu

Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum.