
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Tara tölvuskrímsli er pínulítil tölvuleikjaóð vera. Hún nærist á þungu lofti og svita og það besta sem hún veit eru innipúkar sem hanga í tölvuleikjum. Þegar hennar versti óvinur, ferskt loft mætir, þá flýr hún langt, langt í burt. En hvurt?
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi kemur krökkunum á óvart og leigir hoppukastala! Hann sér strax eftir því, þar sem það er mjög auðvelt að slasa sig í slíkum tækjum, sérstaklega þegar þau verða alveg stjórnlaus og hoppa og hoppa..
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn leggur af stað að millivídda-galdrahliðinu í Galdrahellinum. Álfur neyðir þau inn í skóg hrafnakonungsins þar sem pínulítill Naddi ræðst á þau. Brynhildur lagfærir húsið hans og Guðrún stelur galdrakolum. Vakur tekur völdin á Breiðholtseyju og bilaður verndargripur sogar hættulega orku úr þeim Álfi og Vakri.
Hildur Vala Baldursdóttir tekur á móti góðum gestum í nýjum skemmtiþætti þar sem boðið er upp á skemmtiatriði í beinni útsendingu í bland við upptekin atriði og lifandi tónlistarflutning. Tónlistarstjóri: Magnús Jóhann Ragnarsson. Leikstjórn: Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Hannes Þór Halldórsson. Framleiðsla: Atlavík. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Íþróttir hafa leikið Íslendinga grátt í gegnum tíðina. Við skoðum þær frá öllum hliðum. Gestastjórnendur eru Anna Svava Knútsdóttir og Mikael Kaaber.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Magni og Svanhildur hafa hvert vor og haust í átján ár flutt um þrjú hundruð metra á milli húsa á Ísafirði þar sem heimili þeirra er á snjóflóðahættusvæði. Við flytjum með þeim – tvisvar. Við kynnumst Adólfi Sigurgeirssyni sem flutti til Grindavíkur eftir að hafa flúið gosið í Heimaey. Við bökum makkarónur með Vincent Cornet í Vík í Mýrdal, en íslensk náttúra er honum innblástur, og við hittum Harald Björn Halldórsson sem horfði á eftir skriðu hrifsa margra ára vinnu og heimili hans á Seyðisfirði.

Bein útsending frá Íslandsmótinu í áhaldafimleikum.
Keppni á stökum áhöldum á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar fjöllum við um stórmerkilega rannsókn á myndskreytingum í seinni tíma handritum, frá 17. öld til upphafs 20. aldar. Þarna er þáttur í myndlistarsögu Íslands sem lítt hefur verið gaumur gefinn. Hér ræðir um bókina Skrifarar sem skreyttu handrit sín eftir sagnfræðinginn Kjartan Atla Ísleifsson. Jónína Leósdóttir segir okkur frá nýrri spennusögu sinni sem nefnist Algjör perla - sjálf segir hún að þetta sé kátínukrimmi. Við hittum blaðamanninn Sigurð Boga Sævarsson en hann hefur sent frá sér bókina Fólkið í vinnunni. Hún birtir sýnishorn af starfi Sigurðar sem ferðast vitt og breitt um landið, tekur myndir af fólki á förnum vegi og ræðir við það. Góð gamaldags blaðamennska semsé. Í Bókum og stöðum förum við í Kollafjörð á Ströndum en þar verða meðal annars á vegi okkar bóndakonan og rithöfundurinn Guðbjörg Jónsdóttir og skáldið Gerður Kristný. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Hinn æðsta leyndardóm eftir Dan Brown, Stund úlfsins eftir Jo Nesbö og hið sígilda rit Útlendinginn eftir Albert Camus.

Norskur myndaflokkur þar sem fylgst er með venjulegu fólki sem er svo ástríðufullt í áhugamálum sínum að það liggur við brjálæði. Þáttastjórnandinn Are Sande Olsen tekur viðtöl við fólk með ótrúlegustu áhugamál og skoðar þau ofan í kjölinn.
Matreiðsluþættir með Kristni Guðmundssyni. Eftir að Kristinn varð pabbi fór hann að elda ofnrétti oftar. Þar sem hann er vanur að fara ótroðnar slóðir eldar hann alla réttina í eldofni sem hann byggði með vinum sínum í Norður-Frakklandi. Dagskrárgerð og framleiðsla: Kristinn Guðmundsson.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Við kynnumst hinni ævafornu veru Loft sem hefur fengið að lifa óáreitt í milljónir ára þangað til jarðormar skemma allt. Loft tapar klútnum sínum og þar með uppsprettu galdrarmáttar þess.

Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Í íþróttaTÍMA útbúa álfarnir Bolli og Bjalla æsispennandi keppni á milli tveggja liða sem mætast í þrem þrautum: Svampasundi, Buxnaflækju og Kúlustigakasti.
Liðin keppast við að safna stigum og annað liðið stendur upp úr sem sigurvegari.
Í þessum þætti mætast liðin TM og Tvibbarnir
Keppendur eru:
Tinni Snær Aðalsteinsson
Mónika Mekkín Svavarsdóttir
Lóa Lind Karlsdóttir
Fanney Fjóla Karlsdóttir
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson og Una Torfadóttir yfirheyra íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Sumt fólk er ekki hægt að hólfa niður og það vill ekkert síður en láta skilgreina sig. Við ræðum við þetta fólk um listina og þá sérstaklega listina að líða vel í eigin skinni. Fjölbragðasveitin ADHD tekur lagið með okkar eigin Unu Torfa.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Spænsk gamanmynd frá 2021 í leikstjórn Fernando León de Aranoa. Verksmiðjueigandinn Blanco á von á dómnefnd sem á að meta fyrirtækið hans fyrir eftirsótt verðlaun. Þegar hann er í þann mund að taka á móti gestunum byrja vandamálin að hlaðast upp hvert á fætur öðru og Blanco þarf að grípa til örþrifaráða til að bjarga glansmynd fyrirtækisins. Aðalhlutverk: Javier Bardem, Manolo Solo og Almudena Amor. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf á köldustu svæðum jarðar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar.