Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Kona sem fór í misheppnaða fegrunaraðgerð í Tyrklandi í gegnum íslenska fyrirtækið Hei-medival veit ekki enn hver framkvæmdi aðgerðina. Konan er með stór og ljót ör eftir andlitslyftingu og aðskotahlutur varð eftir í andliti hennar í aðgerðinni. Rætt er við konuna í Kastljósi kvöldsins og gestur þáttarins er Guðjón Sigurbjartsson framkvæmdastjóri HEI medical travel.
Í nýrri sýningu listakonunnar Eddu Karólínu Ævarsdóttur kynnir hún nýja röð skúlptúrinnsetninga, í samspili við hljóðheim eftir tónlistamanninn Dag Sölva Halldórsson. Við lítum inn á sýninguna í þættinum.
