Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Laufey Haraldsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir. Sjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Menntaskólans í Reykjavík.
![Amma glæpon](/spilari/DarkGray_image.png)
Bresk gamanmynd byggð á samnefndri barnabók eftir David Walliams. Ben er sendur í pössun til ömmu og er ekki skemmt yfir því. Amma er hins vegar ekki eins ömmuleg og Ben hélt því hún á sér aðra og ævintýralegri hlið. Skemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna. Aðalhlutverk: Julia McKenzie, Reece Buttery, Joanna Lumley o.fl.
![Fréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
![Íþróttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Íþróttafréttir.
![Grínistinn](/spilari/DarkGray_image.png)
Laddi hefur skemmt þjóðinni um áratugaskeið. Flest þekkjum við þó persónurnar sem hann leikur betur en manninn sjálfan. Hver er maðurinn á bakvið gervin? Gísli Einarsson fær vini og samferðarmenn Ladda sér til aðstoðar við að draga upp nærmynd af Þórhalli Sigurðssyni, Ladda. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
![Gifstu mér, félagi](/spilari/DarkGray_image.png)
Frönsk gamanmynd frá 2017 í leikstjórn Tareks Boudali. Hinn marokkóski Yassine er búsettur í Frakklandi. Fyrir óheppni endar hann sem ólöglegur innflytjandi og til að forðast að verða sendur úr landi biður hann besta vin sinn, Fred, að giftast sér. Aðalhlutverk: Tarek Boudali, Philippe Lacheau og Charlotte Gabris. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bresk sakamálamynd í þremur hlutum, byggð á sögu Agöthu Christie. Maður nokkur finnst illa til reika og áður en hann gefur upp öndina muldrar hann dularfulla setningu sem enginn fær botn í. Prestssonurinn Bobby Jones og vinkona hans, samkvæmisljónið Frankie Derwent, rannsaka málið. Aðalhlutverk: Will Poulter, Lucy Boynton og Maeve Dermody. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
![KrakkaRÚV](/spilari/DarkGray_image.png)
Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
![Fréttir (með táknmálstúlkun)](/spilari/DarkGray_image.png)
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.