Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er ekki ánægður þegar eitt barna hans teiknar skopmynd af sér og tekur til sinna ráða. Eftir á að hyggja hefði verið bara betra að hlægja bara sjálfur.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2020 og hitti landann fyrir uppi á fjöllum, úti í garði, á tjaldsvæðinu, vinnustaðnum, hjólastígnum og víðar.
Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir og fleiri.
Leikur Frakklands og Brasilíu í körfubolta karla.
Leikur karlaliða Þýskalands og Svíþjóðar í handbolta.
Keppni í úrslitum í sundi.
Samantekt frá viðburðum dagsins á Ólympíuleikunum í París. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson. Stjórn útsendingar: Vilhjálmur Siggeirsson.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem fer fram á Borgarfirði eystri.
Þriðja þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Úrslit í júdó í -48 kg kvenna og -60 kg karla.
Leikur karlaliða Danmerkur og Frakklands í handbolta.
Undankeppni í fjölþraut karla í fimleikum.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.