Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna sem einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Dómarar: Vilhelm Anton Jónsson og Ingileif Friðriksdóttir. Spyrill: Kristjana Arnarsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti mætast Menntaskólinn í Reykjavík og Borgarholtsskóli í úrslitum. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Birta Líf Breiðfjörð Jónasdóttir, Ármann Leifsson og Víkingur Hjörleifsson. Lið Borgarholtsskóla skipa Fanney Ósk Einarsdóttir, Magnús Hrafn Einarsson og Viktor Hugi Jónsson.
Í Toppstöðinni er fylgst með ólíkum hópum frumkvöðla í spennandi vegferð hugmyndar, af þróunarstigi til fullbúinnar vöru eða þjónustu. Meðal annars verður fylgst með nýjungum á sviði húsbygginga, símatækni, orku, eldsneytis, heilsuvara og afþreyingar fyrir börn svo fátt eitt sé nefnt.
Þáttur frá 2017 í umsjón Þóru Arnórsdóttur um rithöfundinn og viðskiptamanninn Ólaf Jóhann Ólafsson. Eftir þrjátíu ára starf við stjórnun bandarískra stórfyrirtækja meðfram farsælum rithöfundarferli er komið að tímamótum. Rætt er við fjölskyldu Ólafs og vinnufélaga og skyggnst undir slétt og fellt yfirborð þessa óskadrengs þjóðarinnar - sem virðist ekki hafa gleymt því hvar ræturnar liggja, þrátt fyrir margra ára dvöl erlendis.
Hljómskálinn snýr aftur, fullur langt út úr dyrum af nýjum viðtölum, nýjum andlitum og nýrri íslenskri tónlist. Sigtryggur Baldursson yfirheyrir íslenskt tónlistarfólk og greiningardeildin kryfur bransann til mergjar. Framleiðsla: Stjörnusambandsstöðin.
Það verður nóg af flippi í þessum þætti Hljómskálans. Flippuð lög, flippuð föt, flippaðar sögur og flipp sem fór gersamlega úr böndunum. Gamalt og nýtt í fádæma flippuðum Hljómskála.
![Hið sæta sumarlíf](/spilari/DarkGray_image.png)
Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.
![KrakkaRÚV](/spilari/DarkGray_image.png)
![Lesið í líkamann](/spilari/DarkGray_image.png)
Tvíburarnir Dr. Chris og Dr. Xand kynna nokkrar sturlaðar staðreyndir um mannslíkamann og gera skemmtilegar lífræðilegar tilraunir.
![Hönnunarstirnin](/spilari/DarkGray_image.png)
Nico og Andrés mæta enn á ný með nýjar áskoranir fyrir upprennandi fatahönnuði.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Leit íslenskra mæðgna að forföður sínum tók óvænta stefnu þegar danska andspyrnuhreyfingin og sjálf konungsfjölskyldan voru skyndilega komin í spilið. Kastljós hitti mæðgurnar með blátt blóð í æðum.
Bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir hafa brallað ýmislegt í vetur þar sem Iceguys ævintýrið bar líklega hæst. Kastljós hitti þá við sumargrill þar sem var rætt um þáttagerð og tónlist, en líka stöðu drengja í skólakerfinu, þátttöku foreldra í uppeldi og samskipti við skólana.
Breskir gamanþættir frá 2022 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.
![Nærmyndir](/spilari/DarkGray_image.png)
Margrómuð eintöl Alans Bennetts í nýrri útgáfu. Meðal flytjenda eru Sarah Lancashire, Martin Freeman, Kristin Scott Thomas, Jodie Comer and Maxine Peake. Einleikirnir voru teknir upp á tímum útgöngubanns og samkomutakmarkana í Bretlandi vegna heimsfaraldurs COVID-19. Ný kynslóð fremstu leikara Breta flytja klassísk handrit Alans Bennetts.
Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Eamonn Walker og David Eignberg. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð danskra sakamálaþátta. Lögreglumaðurinn Rolf Larsen kemst á snoðir um mansalshring þegar 19 Víetnamar finnast myrtir í farmrými vöruflutningabíls. Aðalhlutverk: Anders W. Berthelsen, Olivia Joof Lewerissa og Zofia Wichlacz. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.