Morgunútvarpið

Öldungablak, TikTok, Bakgarðshlaupið, Eurovision og Tæknihornið

Yfir 1200 manns sækja árlega íslandsmót öldunga í blaki sem fer fram á íþróttasvæðinu Varmá í Mosfellsbæ . Það er Blakdeild Aftureldingar sem hefur veg og vanda af mótinu en það fer af stað á fimmtudaginn og stendur til laugardags en leikið verður á 15 völlum. Gunna Stína Einarsdóttir, hjá Blakdeildar Aftureldingar, var á línunni.

Smáforritið TikTok hefur verið mikið í umræðunni, í Bandaríkjunum sérstaklega vegna þess rætt er um banna það. Til þess vernda börn og ungmenni frá forheimsku eins og það er kallað. Bandaríkjamenn hafa miklar áhyggjur af því Kína, sem er tengt fyrirtækinu sem á og hannar TikTok, nota forritið til þess hafa áhrif á ungdóminn í Bandaríkjunum sem og safna upplýsingum um bandaríkjamenn. En hvað með okkur íslendinga? Á banna það hérlendis? Óttar Birgisson, sálfræðingur og doktorsnemi, kom til ræða TikTok.

Bakgarðshlaupið fór fram um helgina og lauk í gær. Hlaupið gengur út á hlaupa sama 6,7 kílómetra hringinn á klukkutíma fresti þar til einn hlaupari stendur eftir, sama hvenær það er. Sigurvegarinn Mari Järsk hljóp 57 hringi og bætti íslandsmetið sem var 50 hringir. Hún hljóp yfir 380 km. Elísabet Margeirsdóttir, skipuleggjandi Bakgarðshlaupsins, kom til okkar í spjall.

Gunnar Birgisson hefur undanfarna viku búið í Eurovision búblunni svokölluðu á vegum RÚV. Í kvöld stígur Hera Björk Þórhallsdóttir á svið í Malmö og flytur framlag Íslands í ár, Scared of heights. Landsmenn skiptast í fylkingar vegna þátttöku Ísraela í keppninni í ár og ætla ýmist sniðganga keppnina eða einfaldlega halda í hefðina og horfa. Samkvæmt könnun Maskínu virðast lands­menn hóf­lega bjart­sýn­ir á gengi Íslands. Gunnar Birgisson var bjartsýnn á gengi okkar fólks en hann var í beinni frá Malmö.

Og Guðmundur Jóhannsson kom í sitt hálfsmánaðarlega Tæknihorn í lok þáttar.

Lagalisti:

Elín Hall - Er nauðsynlegt skjóta þá?

Paul Simon - Kodachrome

Rolling Stones - Start Me Up

KT Tunstall - Black Horses & The Cherry Tree

Bubbi Morthens - Dansaðu

Robin Schulz og Ilsey - Headlights

Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights

George Michael - Faith

Frumflutt

7. maí 2024

Aðgengilegt til

7. maí 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,