ruv.is / Um RÚV / Innkaupastefna RÚV

Innkaupastefna RÚV

 

Gildissvið:

Innkaupastefna Ríkisútvarpsins er byggð á lögum og reglugerðum um opinber innkaup og innkaupastefnu ríkisins, sem samþykkt var í nóvember 2002.

Markmið:

Markmið innkaupastefnu Ríkisútvarpsins er að tryggja að öll innkaup séu hagkvæm, gegnsæ og ábyrg, þannig að markmið Innkaupastefnu ríkisins um sparnað á næstu fjórum árum nái fram að ganga. Sýnt hefur verið fram á að að minnsta kosti 1% árlegur sparnaður náist og gæði vöru og þjónustu aukist með aukinni notkun rammasamninga og rafrænna viðskipta. Til að ná markmiðinu ætlar Ríkisútvarpið að gera eftirfarandi:

  • Að leita ávallt hagstæðustu leiða í öllum innkaupum.
  • Að leitast ávallt við að nýta rammasamninga Ríkiskaupa, þar sem þeim verður við komið, eins og gert hefur verið markvisst frá árinu 2000.
  • Þar sem Rammasamningar Ríkiskaupa ná ekki til skal ávallt gera verðsamanburð og öll innkaup á vörum yfir 5 m.kr. og kaup á þjónustu og verkum yfir 10 m.kr. skal bjóða út í samráði við Ríkiskaup.
  • Að stefna að því að taka upp rafræn viðskipti annaðhvort í gegnum Markaðstorg Ríkiskaupa og eða í gegnum Innkaupakort ríkisins á rekstrarvörum.
  • Að nota Innkaupakort ríkisins, þar sem hagkvæmt þykir eins og til að mynda með því að nýta kortið til greiðslu reglubundinna reikninga eins og símareikninga og orkureikninga.

 

Ábyrgð og skipulagning innkaupa

Útvarpsstjóri ber ábyrgð á innkaupum skv. lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og lögum nr. 94/2001, um opinber innkaup. Útvarpsstjóri hefur skipað Jón Inga Benediktsson, deildarstjóra aðalskrifstofu Ríkisútvarpsins, ábyrgðarmann innkaupa og annast hann framkvæmd innkaupa í hans umboði.

Eftirlit og eftirfylgni

Mikilvægt er að vel sé staðið að eftirliti með opinberum innkaupum. Samkvæmt lögum og reglum um framkvæmd fjárlaga hafa fagráðuneyti eftirlit með rekstri stofnana viðkomandi ráðuneytis og fylgjast með að rekstur sé innan fjárheimilda og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt og í samræmi við markmið fjárlaga.

Útvarpsstjóri og ábyrgðarmaður innkaupa meti reglulega og ekki sjaldnar en á árs fresti, árangur af þeim markmiðum sem sett hafa verið og setji sér önnur markmið í framhaldi.