Viðvörun vegna hláku
Fyrst birt: 27.01.2012 08:41, Síðast uppfært: 27.01.2012 08:41

Mynd úr safni.
Veðurstofan gerir ráð fyrir hlýnandi veðri og hláku á suðvesturhorninu síðar í dag og næstu daga. Því fylgir hætta á vatnstjónum enda mikil fönn víðast hvar.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vekur athygli á mikilvægi þess að hreinsað sé frá niðurföllum og af svölum til að minnka líkur á tjóni. Þá sé mikilvægt að minnka slysahættu af völdum hálku með því að hreinsa snjó við heimahús og fyrirtæki.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







