Sarpurinn

Hamingjudalur
Happy Valley II05/04/2016 - 22:20

Veðurfréttir
05/04/2016 - 22:15
Tíufréttir
05/04/2016 - 22:00Væruð að „horfa á alvarlegt kynferðisbrot“
Júlía varð fyrir því að maður sem hún átti í sambandi við fyrir þremur árum tók upp myndband af henni án hennar vitneskju þegar þau sváfu saman og setti svo á internetið.
Júlía er ekki nafngreind á myndbandinu en hún segir að því hafi verið mikið dreift á netinu og sé að finna á mörg hundruð erlendum klámsíðum nú tveimur árum síðar.
Hún segir í færslu á Facebook-síðu sinni í kvöld að einhverjir kunni að velta því fyrir sér hvað hafi fengið hana til að koma fram undir nafni og mynd. „Ég hafði um tvennt að velja. Annað hvort að vera hrædd og fela mig; vera í stöðugum ótta að einhver myndi finna myndbandið og nota það gegn mér. Eða ég gat komið fram á eigin forsendum og ákveðið að enginn fær að hræða mig með þessu.“
Helga Arnar og Kastljósið fjölluðu um kærumál sem ég er með í gangi sem ég vil kalla stafrænt kynferðisbrot. (Þetta er...
Posted by Júlía Birgis on 15. desember 2015
Hún segist vona að málið verði til að hjálpa einhverjum sem eru eða hafi verið í svipuðum sporum. „Til þeirra sem vilja finna myndbandið og horfa á það segi ég: ef þið finnið video-ið og horfið á það skuluð þið gera ykkur grein fyrir því að það sem þið eruð að horfa á er alvarlegt kynferðisbrot gegn mér! Þið eruð ekkert betri en sá sem tók það upp og dreifði því. Skömmin er ekki mín! Hún er ykkar!“




