Um 500 listamenn á Listahátíð

Um fimm hundruð listamenn koma fram á Listahátíð í Reykjavík í ár. Dagskrá hátíðarinnar var kynnt í dag.
Spænska söngkonan Buika er meðal fjölmargra tónlistarmanna sem koma fram á Listahátíð, sem stendur dagana 18. maí til 3. júní. Tónlist hennar er blanda af blús, djassi, sálartónlist og spænskum tregasöngvum. Buika er ættuð frá Miðbaugs-Gíneu en fæddist og ólst upp í sígaunaþorpi á Mallorca.
Meðal annarra sem koma fram á hátíðinni eru franski tónlistarmaðurinn Yann Tiersen, rokkarinn Brian Ferry og rússneski píanóleikarinn Arcadi Volodos. Ný leiksýning eftir Gísla Örn Garðarsson og bandaríska handritshöfundinn Richard Lagravenese verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu og tólf klukkustunda langt myndbandsverk eftir Ragnar Kjartansson verður sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins, svo eitthvað sé nefnt.
Norrænir myndlistarmenn munu leggja undir sig sýningarsali víða um borgina. Myndlistarsýningarnar kallast einu nafni „Sjálfstætt fólk". Þar er lögð áhersla á samtímamyndlist frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Yfir hundrað listamenn taka þátt í sýningunum í tuttugu og níu hópum. Listamennirnir munu meðal annars velta fyrir sér hvort þjóðir þeirra eigi sér einhverja sameiginlega frásagnarhefð, og hvort það þjóni einhverjum tilgangi að rýna í hana.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














