Tom Cruise kemur í júní

Tvö erlend tökulið eru væntanleg til Íslands á þessu ári. Stórstjörnurnar Tom Cruise og Ben Stiller verða meðal þeirra sem sækja landið heim en gjaldeyristekjurnar af myndunum tveim gætu numið yfir einum og hálfum milljarði íslenskra króna.
„20% endurgreiðslan og svo gengi krónunnar kemur okkur til góða,“ segir Leifur B. Dagfinnsson, framleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu True North. Fyrirtækið sér fram á annasamt ár því það mun þjónusta að minnsta kosti tvær stórar bandarískar Hollywood-kvikmyndir.
Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku er bandaríski stórleikarinn Ben Stiller væntanlegur til landsins í haust. Hátt í tvö hundruð manna tökulið mun þá dveljast hér vegna kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty en tökur fara meðal annars fram í Reykjavík, Seyðisfirði, Stykkishólmi og við Höfn. Leifur segir það verkefni vera ansi umsvifamikið og mjög spennandi.
En Stiller er ekki eina stórstjarnan sem er væntanleg því Leifur staðfesti að Tom Cruise kæmi einnig hingað til lands í júní með svipað stórt tökulið. Þar er um að ræða stórmyndina Oblivion í leikstjórn Joseph Kosinski. Tökur á þeirri mynd fara að mestu leyti fram uppá hálendinu . „Það þarf í raun bara eldgos til að koma í veg fyrir þær tökur. Fyrstu mennirnir frá þeirri mynd eru væntanlegir í maí,“ segir Leifur og bætir því við að fleiri verkefni séu á teikniborðinu.
Ísland hefur notið sífellt meiri vinsælda hjá tökuliðum frá Hollywood. Í fyrra var hluti af kvikmyndinni Prometheus eftir Ridley Scott tekinn upp hér á landi en gjaldeyristekjurnar af þeirri mynd numu rúmum 740 milljónum íslenskra króna . Myndir þeirra Stiller og Cruise gætu því skilað tæpum einum og hálfum milljarði í gjaldeyristekjur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














